Nánari upplýsingar um F plús 3
- F plús 3 inniheldur alla helstu bótaþætti í F plús 2, auk umönnunartryggingu barna en er með hærri bótafjárhæðir en F plús 2.
- F plús 3 inniheldur átta verndir: Innbústryggingu, viðbótarkostnað vegna innbústjóns, ábyrgðartryggingu, málskostnaðartryggingu, frítímaslysatryggingu, breytinga- og hjálpartækjakostnað í kjölfar slyss, áfallahjálp og umönnunartryggingu barna.
- Ef þú ert með F plús 3 tryggingu getur þú einnig bætt við innbúskaskótryggingu og ferðatryggingu F plús.
- Þegar heimilisaðstæður breytast, til dæmis ef fjölskyldan eða húsnæðið stækkar, er gott að endurskoða F plús leiðina þína.

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Afslættir og aðrar upplýsingar
