Hoppa yfir valmynd

Ábending, kvörtun eða hrós

Að hlusta á rödd viðskiptavina VÍS er lykillinn að því að veita framúrskarandi þjónustu. Við tökum vel á móti ábendingum og tillögum að því sem betur mætti fara og einsetjum okkur að leysa öll mál á farsælan og skjótan máta. Með því viljum við koma í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig.

Við höfum sett okkur stefnu og verklagsreglur um meðhöndlun kvartana í samræmi við 9. og 10. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi og reglna nr. 353/2022 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, samskipti við viðskiptavini og meðhöndlun kvartana. Í stefnunni er verklag við móttöku kvartana útskýrt en tilgangur þess er að tryggja samræmi, skilvirkni og sanngjarna afgreiðslu slíkra erinda.

Senda ábendingu, kvörtun eða hrós

Endilega láttu okkur vita ef þú ert með ábendingu, kvörtun eða hrós.