Verk­stæði og bíla­leigur

Hér má finna upplýs­ingar um verk­stæði og bíla­leigur um land allt sem þjóna viðskipta­vinum VÍS. Öll verk­stæðin sjá um tjóna­skoðun áður en viðgerð hefst. Við hvetjum viðskipta­vini til þess að ganga úr skugga um að nauð­syn­legir vara­hlutir séu til taks áður en viðgerð hefst.

Nauð­syn­legt er að hafa samband við okkur áður en leitað er annað en til þeirra sem er að finna á þessum lista.

Þú getur valið verk­stæði úr list­anum hér fyrir neðan eða fundið verk­stæði sem er nálægt þér þá stund­ina.

Réttur á bíla­leigubíl fer eftir því hvernig ökutækja­trygg­ingar þú ert með, hvernig tjóni þú lentir í og stöðu þinni í vild­ar­kerfi VÍS.

Ef þú hefur lent í bílrúðutjóni og skemmdin er lítil er hugs­an­lega hægt að gera við bílrúðuna þér að kostn­að­ar­lausu í stað þess að skipta um hana. Tilkynna bílrúðutjón.

Bílrúðutjón

Viðgerð á bílrúðunni er bæði umhverfisvænni og hagstæðari kostur en bílrúðuskipti.