Hoppa yfir valmynd

F plús 3

F plús 3 er vinsælastaunderlinefjölskyldu- og innbústryggingin okkar. F plús 3 tryggir þig og fjölskylduna þína í frítíma og hlutina sem þið hafið unnið hörðum höndum að eignast.

F plús 3 hentar barnafólki vel þar sem hún inniheldur verndir sem eru sérsniðnar að börnum.

Nánari upplýs­ingar um F plús 3

  • F plús 3 inniheldur alla helstu bótaþætti í F plús 2, auk umönnunartryggingu barna en er með hærri bótafjárhæðir en F plús 2.
  • F plús 3 inniheldur átta verndir: Innbústryggingu, viðbótarkostnað vegna innbústjóns, ábyrgðartryggingu, málskostnaðartryggingu, frítímaslysatryggingu, breytinga- og hjálpartækjakostnað í kjölfar slyss, áfallahjálp og umönnunartryggingu barna.
  • Ef þú ert með F plús 3 tryggingu getur þú einnig bætt við innbúskaskótryggingu og ferðatryggingu F plús.
  • Þegar heimilisaðstæður breytast, til dæmis ef fjölskyldan eða húsnæðið stækkar, er gott að endurskoða F plús leiðina þína.
Bera saman F plús
Nánari upplýsingar um F plús 3

Innifalið í tryggingunni

Innbústrygging

Innbústrygging tryggir innbú og persónulega muni sem fylgja almennu heimilishaldi. Innbústrygging tekur til dæmis til þjófnaðar, bruna og vatnstjóns á innbúi.

Lesa meira

Viðbótarkostnaður vegna innbústjóns

Það getur tekið mikið á að lenda í tjóni og fylgir stórum tjónum oftast mikið rask. Þessi trygging bætir þér tjón af völdum slökkvi- og björgunaraðgerða sem getur orðið þegar verið er að forðast eða minnka tjón sem er bótaskylt úr F plús tryggingunni þinni.

Lesa meira

Frítímaslysatrygging

Ef þú eða þitt fólk lendir í slysi. Frítímaslysatrygging bæt­ir tjón vegna slysa sem verða í frí­stund­um, við heim­il­is­störf, í skóla eða við al­menn­ar íþróttaiðkan­ir sem leiða til tannbrots, tímabundins missis starfsorku, var­an­legr­ar lækn­is­fræðilegr­ar ör­orku eða and­láts. 

Lesa meira

Umönnunartrygging barna

Ef barnið þitt þarf að leggjast inn á sjúkrahús vegna sjúkdóms eða slyss og dvelur þar í 5 daga samfellt eða lengur gætir þú átt rétt á bótum úr umönnunartryggingu barna. 

Lesa meira

Breytinga- og hjálpartækjakostnaður í kjölfar slyss

Ef þú lendir í slysi sem leiðir til varanlegrar örorku þarf hugsanlega að aðlaga lögheimili þitt að breyttum aðstæðum þínum. Einnig er hugsanlegt að það þurfi að koma fyrir nauðsynlegum hjálpartækjum.

Lesa meira

Málskostnaðartrygging

Kostnaður við að reka einkamál fyrir dómstólum getur verið mikill. Málskostnaðartrygging greiðir málskostnað þinn vegna ágreinings í einkamálum.

Lesa meira

Ábyrgðartrygging F plús

Samkvæmt íslenskum lögum berð þú skaðabótaábyrgð ef þú veldur öðrum líkams- eða munatjóni með saknæmum og ólögmætum hætti.

Lesa meira

Áfallahjálp

Lentir þú í áfalli? Við vitum að það getur verið áfall að lenda í tjóni eða slysi og því er oft nauðsynlegt að leita sér aðstoðar hjá fagfólki sem getur veitt áfallahjálp.

Lesa meira

Þarftu meiri vernd?

F plús 4

F plús 4 er víðtækasta fjölskyldu- og innbústryggingin okkar og hentar þér vel ef þú vilt bestu mögulegu tryggingaverndina fyrir fjölskylduna þína og innbúið.

Lesa meira

Innbúskaskó

Lentir þú í óhappi? Tryggingin bætir tjón á almennu innbúi og tilteknum tómstundabúnaði sem ekki er tryggður í innbústryggingu, það er að segja ef tjónið verður vegna skyndilegra, ófyrirsjáanlegra og utanaðkomandi atvika.

Lesa meira

Íþrótta- og tómstundaáhætta

Ertu að fara að keppa erlendis eða stunda áhættusamar tómstundir? Ef þú ert með frítímaslysatryggingu getur þú í flestum tilfellum keypt trygginguna íþrótta- og tómstundaáhættu til skamms tíma.

Lesa meira

Ferðatrygging F plús

Ef þú ert með F plús fjölskyldutryggingu getur þú keypt ferðatryggingu F plús en hún er víðtæk ferðatrygging fyrir þá sem vilja vera vel tryggðir á ferðalögum erlendis. Tryggingin gildir í 92 daga frá brottför.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með F plús 3?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með F plús 3?
Forvarnir
Heimilið

Innbrot

Margt er hægt að gera til að fyr­ir­byggja inn­brot. Oft á tíðum er and­lega van­líðan og óör­yggið sem fylg­ir því að brot­ist er inn á heim­ilið mun verra en tjónið og mun­ir sem hverfa í inn­brot­inu.  Því er mik­il­vægt að hver og einn sé meðvitaður um þær for­varn­ir sem hann get­ur sinnt til að koma í veg fyr­ir inn­brot hjá sér. Reynsl­an hef­ur sýnt að inn­brot eru oft vel skipu­lögð. Þjóf­ar eru oft­ast að leita eft­ir hlut­um sem auðvelt er að koma í verð eins og mynda­vél­um, far­tölv­um, sím­um, spjald­tölv­um, flat­skjá­um, pen­ing­um og skart­grip­um.
Lesa meira

Ef þú ert með fjölskyldu- og innbústryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Fasteignatryggingar

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Ökutækjatryggingar

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Líf- og heilsutryggingar

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Ferðatryggingar

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

Dýratryggingar