Hoppa yfir valmynd

Fjalla­sport og
fjall­göngur

Hvort sem þú stundar sérhæft fjallasportunderlineeða fjallgöngur þér til ánægju og heilsubótar, viljum við að þú sért með þá tryggingarvernd sem þú þarft.

Almennt fellur slys á fólki undir frítímaslysatryggingu og tjón á búnaði undir innbústryggingu og innbúskaskótryggingu.

Vertu endilega í sambandi við okkur ef þú lendir í slysi í frítíma þínum eða ef búnaðurinn þinn verður fyrir tjóni.

Ertu með rétta trygg­inga­vernd?

  • Frítímaslysatrygging bætir líkamstjón vegna slysa sem verða í frístundum, við heimilisstörf, í skóla eða við almennar íþróttaiðkanir. Börn í keppnisíþróttum falla líka undir frítímaslysatryggingu fjölskyldunnar til 16 ára aldurs. Frítímaslysatrygging er innifalin í F plús 2, 3 og 4 tryggingunum okkar.
  • Slysatrygging hentar keppnisíþróttafólki sem er eldra en 16 ára og einnig þeim sem stunda áhættusöm áhugamál að staðaldri hér heima.
  • Ef þú ert með frítímaslysatryggingu getur þú í flestum tilfellum keypt verndina séráhætta til skamms tíma. Hún veitir þér vernd á ferðalagi erlendis ef þú ert að fara að keppa í íþróttum eða ætlar til dæmis í köfun, fallhlífarstökk eða fjallgöngu í yfir 4000 metra hæð.
  • Atvinnurekendur eru skyldugir að slysatryggja starfsfólk sitt á vinnutíma. Í vissum tilfellum gildir tryggingin einnig í frítíma ef kjarasamningar segja til um það eða ef atvinnurekendur hafa keypt frítímavernd sem er valfrjáls vernd í slysatryggingu launþega.
  • Ef þú ert með frítímaslysatryggingu, slysatryggingu og slysatryggingu launþega með frítímavernd, þá greiðast samanlagðar bætur úr þeim tryggingum ef þú lendir í bótaskyldu slysi. Bótafjárhæðir eru skattfrjálsar ef um örorkubætur er að ræða.
  • Þú getur séð hvaða tryggingar þú ert með á tryggingayfirliti þínu.
Algengar spurningar
Ertu með rétta tryggingavernd?

Er búnað­urinn rétt tryggður?

  • Ýmis búnaður sem tengist áhugamálum er almennt flokkaður sem innbú. Það á þó ekki við um öll torfærutæki - til dæmis þau sem þarf að tryggja með lögboðinni ábyrgðartryggingu.
  • Innbústrygging nær yfir tjón á innbúi vegna bruna, þjófnaðar og vatns. Innbústrygging er innifalin í öllum F plús fjölskyldutryggingunum okkar.
  • Innbúskaskótrygging nær yfir ýmiskonar óhöpp sem leiða til tjóns á innbúi þínu. Innbúskaskó er innifalin í F plús 4 og valkvæð í F plús 1, 2 og 3. Munur er á bótafjárhæðum, upphæð eigin áhættu og hversu víðtæk verndin er eftir því um hvaða F plús tryggingu er að ræða.
  • Lausafjártrygging er grunntrygging fyrir verðmæta staka muni. Trygg­ing­in bæt­ir tjón af völd­um bruna en einnig er hægt að bæta við hana vernd vegna vatns­tjóna, óveðurs, inn­brota og ráns. Lausafjártrygging hentar sem viðbót við F plús þegar að heildarverðmæti sérstakra muna fer yfir hámarksbótafjárhæðir eða ef þú vilt tryggja einstaka verðmæta muni en ert ekki með F plús.
  • Víðtæk eignatrygging er gjarnan tekin fyrir einstaka dýra muni en hún tryggir þá fyrir tjón­um sem verða vegna skyndilegra, óvæntra og utanaðkomandi atburða. Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum á meðan munirnir eru í umsjá þinni.
  • Við bendum viðskiptavinum okkar á að passa upp á greiðslukvittanir svo hægt sé að framvísa þeim ef tilkynna þarf tjón.
  • Þú getur séð hvaða tryggingar þú ert með á tryggingayfirliti þínu.
Algengar spurningar
Er búnaðurinn rétt tryggður?
Forvarnir
Frítími

Vetrarsport

Til að stuðla að heil­brigði er reglu­leg hreyf­ing nauðsyn­leg og er úr nægu að velja. Vinsældir vetrarsports er sífellt að aukast og partur af tilverunni hjá mörgum yfir vetrartímann er að skella sér á svigskíði, gönguskíði, bretti eða skauta.
Lesa meira