Nánari upplýsingar um lögboðna brunatryggingu
- Tryggingarfjárhæð og verð tryggingar tekur mið af brunabótamati fasteignar. Brunabótamat endurspeglar endurbyggingarkostnað fasteignar.
- Mikilvægt er að þú óskir eftir brunabótamati ef um nýbyggingu er að ræða eða endurmati á brunabótamati eldra húsnæðis og komir upplýsingum um matið til okkar.
- Ef brunabótamat stendur ekki undir endurbyggingarkostnaði getur þú keypt viðbótarbrunatryggingu.
- Þegar þú kaupir lögboðna brunatryggingu myndast sjálfkrafa vernd hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands vegna ýmissa náttúruhamfara.
- Við mælum með húseigendatryggingu til viðbótar við lögboðna brunatryggingu. Húseigendatrygging veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á fasteignum. Algeng tjón sem bætt eru úr húseigendatryggingu eru vatnstjón frá lögnum, rúðubrot og óveðurstjón. Þessi tjón eru algengari en brunatjón og eru oft mjög kostnaðarsöm. Innbú og aðra lausamuni þarf að tryggja sérstaklega með F-plús fjölskyldutryggingu eða lausafjártryggingu ef um sérstaklega verðmæta hluti er að ræða.

Tryggingin bætir
- Brunatjón.
- Skyndilegt sótfall.
- Fall loftfara á fasteign.
- Slökkvi- og björgunaraðgerðir til að forðast eða takmarka tjón.
Tryggingin bætir ekki
- Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Skemmdir vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman. Til dæmis vegna sóts frá reykháfi eða kertum.
- Óbeint tjón vegna bruna eins og rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna og þess háttar.
- Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds atburðar.
Trygging frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er einnig innifalin. Sú trygging bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.