Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 10.06.2023

Hluthafafundur

Hluthafafundur VÍS verður haldinn 14. júní nk.

Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 3 í Reykjavík.

Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, miðvikudaginn 14. júní kl. 16:00, en auk þess verður boðið upp á rafræna þátttöku.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja hluthafafundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni:

Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 12. júní, eða tveimur dögum fyrir hluthafafundinn. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Endanleg dagskrá fundarins er í viðhengi. Öll gögn vegna hluthafafundar, s.s. ályktunartillögur stjórnar og greinargerð með þeim, kynning vegna hluthafafundar, skýrslu stjórnar vegna hlutafjárhækkunar, umsögn löggilts endurskoðanda og skýrslu löggilts endurskoðanda, má finna á vefsíðu félagsins.