Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 11.01.2023

Helgi hættir sem forstjóri VÍS

Stjórn VÍS hefur samið um starfslok við Helga Bjarnason, sem forstjóra félagsins, en hann hefur leitt starfsemi VÍS frá 1. júlí 2017. Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu, mun taka tímabundið við starfi forstjóra VÍS.

Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) hefur markað stefnu sem felur í sér ákveðin kaflaskil í rekstri félagsins. Markmið stjórnarinnar er að gera VÍS að enn vænlegri fjárfestingakosti á markaði með skýrri sýn á vöxt, þróun og fjármagnsskipan. Liður í því er að gera félagið söludrifnara, efla tengsl við viðskiptavini og vera í fararbroddi við að innleiða nýjungar í tryggingastarfsemi. Samhliða stefnir VÍS á að verða virkur þátttakandi í þróun fjármálastarfsemi á Íslandi með áherslu á arðsaman vöxt, eignastýringu og ýmis önnur tækifæri sem hafa opnast á fjármálamarkaði.

Á þessum kaflaskilum lætur Helgi Bjarnason af störfum sem forstjóri, en hann hefur leitt starfsemi VÍS frá 1. júlí 2017. Stjórn VÍS mun ráða nýjan forstjóra til félagsins á næstunni og tilkynna um það sérstaklega.

Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu, mun taka tímabundið við starfi forstjóra VÍS. Guðný hefur verið í leiðandi hlutverki í þróun félagsins á undanförnum árum og hefur starfað hjá félaginu síðan 2016. 

Samkeppnishæfni efld

Það er mat stjórnar VÍS að nú sé rétti tíminn til að gera breytingar á hlutverki forstjóra og hefja nýjan kafla á þeim góða grunni sem lagður hefur verið. VÍS þarf að vera í sífelldu breytingaferli til þess að geta verið skrefinu á undan í þróun trygginga- og fjármálamarkaða á Íslandi. Forstjóraskipti nú eru hluti af því ferli. Markmiðið er að VÍS verði í fararbroddi íslenskra tryggingafélaga, veiti framúrskarandi þjónustu og sé í nánum tengslum við viðskiptavini sína.

Eignastýringafélagið SIV, sem er í meirihlutaeigu VÍS, mun hefja starfsemi á næstunni og bjóða fjárfestum og viðskiptavinum VÍS spennandi tækifæri. Er það hluti af stefnumörkun stjórnar og fyrsta skrefið í að víkka út starfsemi félagsins á fjármálamarkaði.

Vöxtur á góðum grunni

VÍS hefur undir forystu Helga Bjarnasonar gengið í gegnum miklar breytingar undanfarin ár. Helstu innviðir félagsins hafa verið uppfærðir eða endurnýjaðir, markvisst hefur verið fjárfest í upplýsingatækni og stafrænni þróun og býr félagið nú að öflugum kerfum sem auka hagkvæmni og öryggi í rekstri. Stjórnunarlegir innviðir félagsins hafa enn fremur verið styrktir verulega. Stjórnkerfi félagsins er til fyrirmyndar og áhersla lögð á fagmennsku á öllum sviðum.

VÍS hefur á að skipa öflugum og metnaðarfullum hópi góðs starfsfólks sem vinnur af heilindum fyrir félagið og viðskiptavini þess. VÍS er því í góðri stöðu til að sækja fram á nýjum forsendum með nýjum áherslum. 

Stjórn VÍS þakkar Helga fyrir mikilvægt framlag hans til uppbyggingar félagsins og gott samstarf.