Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 04.03.2022

Ökuvísir hlýtur tvær tilnefningar!

Við erum í skýjunum fyrir að hafa hlotið tvær tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna. Ökuvísir hlýtur tilnefningu sem app ársins og tæknilausn ársins!

Við erum í skýjunum með tvær tilnefningar!

Í stað þess að bíða eftir að slysin eigi sér stað, viljum við koma í veg fyrir þau. Með forvarnir að leiðarljósi stuðlum við að því að viðskiptavinir okkar lendi síður í tjónum.

Ökuvísir er nýr valkostur í bílatryggingum þar sem hægt er að fá aðgang að appi sem veitir virka endurgjöf um hvað megi gera betur í umferðinni. Ökuvísir er eina bílatryggingin á Íslandi þar sem  einungis tveir þættir hafa áhrif á verðið, þ.e. hvernig þú keyrir (aksturseinkunn) og hversu mikið þú keyrir.

Tæpt ár er síðan VÍS kynnti Ökuvísi til leiks. Á þeim tíma höfum við séð að viðskiptavinir okkar sem eru með Ökuvísi hafa stórbætt akstur sinn. Við getum því með sanni sagt að Ökuvísir virkar!

Þess vegna erum við í skýjunum með að Ökuvísir sé tilnefndur sem tæknilausn ársins og app ársins! Íslensku vefverðlaunin verða svo afhent 11. mars.

Þú getur prófað Ökuvísi í fjórtán daga án þess að kaupa trygginguna og þannig fengið vísbendingu um aksturseinkunn þína. Skoðaðu hvað tryggingin kostar miðað við mismunandi aksturseinkunn.