Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 24.03.2021

Tryggjum öryggi okkar allra

Í ljósi aðstæðna í samfélaginu og aukningu á COVID-19 smitum höfum við ákveðið að loka þjónustuskrifstofum okkar og tjónaskoðunarstöðinni á Smiðshöfða tímabundið frá og með fimmtudeginum 25. mars.

Þjónustuskrifstofur okkar eru lokaðar tímabundið, frá og með 25. mars.

Skráðu þig inn á vefinn okkar og þá getur þú tilkynnt tjón, fengið yfirlit yfir tryggingar og greiðslustöðu og breytt greiðsluupplýsingum. Við hvetjum þig til þess að nýta stafrænu lausnirnar okkar, þegar þér hentar.

Hafðu endi­lega sam­band við okk­ur ef við get­um aðstoðað þig. Sendu okkur tölvupóst á vis@vis.is. Við erum líka til staðar á netspjallinu mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, frá kl. 09.00-16.00 og á föstudögum frá kl. 09.00-15.30. Svo er auðvitað hægt að hafa samband við okkur í síma 560 5000, á sama tíma. 

Starfsfólk VÍS