Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 03.09.2019

Guðmundur yfir sölu- og markaðsmálum hjá VÍS

Guðmundur Óskarsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður sölu- og markaðsmála hjá VÍS. Helsta verkefni hans er að leiða sölu- og markaðsmál fyrirtækisins í gegnum stafrænar leiðir. Hann mun heyra undir Stafræna þróun.

Guðmundur starfaði hjá Icelandair um 14 ára skeið, lengst af sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður sölu- og markaðssviðs. Hann var einnig forstöðumaður sölu- og markaðsmála hjá Air Iceland Connect. Guðmundur er með BS- og BA-gráðu í viðskiptafræði og alþjóðasamskiptum frá Pennsylvania State University og diplómu frá University of Leipzig í Þýskalandi.