Hoppa yfir valmynd

Óveðurstrygging fyrir húsvagna

Í húsvagnatryggingu VÍS eru foktjón undanskilin á tímabilinu 1. október til 30. apríl, nema húsvagn sé geymdur innandyra. Flestir setja vagnana sína því í geymslu yfir þetta tímabil.

Í einhverjum tilfellum eru húsvagnar geymdir utandyra á þessu tímabili og þá er hægt að kaupa lausafjártryggingu með óveðursáhættu.

Eftirfarandi skilyrði eru fyrir tryggingunni:

  • Húsvagn verður að vera geymdur í góðu skjóli og varinn frá ríkjandi vindátt.
  • Hann bundinn niður með góðum festingum.

Til að sækja um þessa tryggingu þarf að skila inn myndum af húsvagni á geymslustað. Hafðu endilega samband við okkur ef eitthvað er óljóst og við aðstoðum þig með ánægju.

Ef þú ert með ökutækjatryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText