Hlöðum örugglega
Margir nota rafhlaupahjól til að komast frá A til B og hlaða þau heima fyrir.
Mikilvægt er að hleðsla þeirra sé eins örugg og hægt er en alvarlegir brunar hafa orðið við hleðslu þeirra. Því er gott að hafa eftirfarandi í huga þegar þarf að hlaða:
- Hafa reykskynjara í rýminu þar sem hlaðið er.
- Hlaða ekki ef enginn er vakandi eða heima.
- Ekki hlaða hjólið við flóttaleið.
- Ekki hlaða ef rafhlaða er skemmd.
- Vera með rétt hleðslutæki.
- Ekki nota laskað hleðslutæki.
- Hafa hleðslutækið sjálft á hörðu undirlagi.
- Hafa eldsmat ekki nærri hjóli eða hleðslutæki í hleðslu.
- Yfirgefa rými ef kviknar í og hringja í 112.