Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 25.08.2023

Hildur Björk nýr forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá VÍS

Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá VÍS.

Hildur Björk Hafsteinsdóttir

Hildur Björk hefur víðtæka þekkingu á markaðsmálum og býr yfir umfangsmikilli reynslu sem stjórnandi. Undanfarið ár hefur Hildur starfað sem forstöðumaður hjá ISAVIA þar sem að hún leiddi markaðsmál félagsins og upplifun farþega á Keflavíkurflugvelli.

Þar áður starfaði Hildur sem forstöðumaður markaðsmála hjá Símanum. Hún er með meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og BS-gráðu í sömu grein frá Háskóla Íslands.

Á árunum 2018-2022, sat Hildur Björk í stjórn ÍMARK, samtökum íslensks markaðsfólks. Hún hefur einnig kennt markaðsfræði í meistaranámi við Háskóla Íslands. Hildur Björk hefur störf 1. september nk.

„Ég er stolt af því að hefja störf hjá VÍS en mér finnst félagið vera á spennandi vegferð. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til þess að styrkja félagið enn frekar í sókn þess á íslenskum tryggingamarkaði“ segir Hildur Björk Hafsteinsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og upplifunar.

Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu, hlakkar til samstarfsins.„Við erum virkilega ánægð með að hafa fengið Hildi til liðs við okkar frábæra teymi. Hildur er reynslumikill leiðtogi og öflug markaðsmanneskja sem mun koma sterk inn í þau verkefni sem framundan eru. VÍS er í umbreytingarferli og í mikilli sókn um land allt. Vörumerkið okkar og upplifun viðskiptavina eru þar í lykilhlutverki. Ég er sannfærð um að Hildur sé rétta manneskjan til þess að taka það áfram með okkur.“