Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 19.08.2021

Uppgjör annars ársfjórðungs 2021

VÍS birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða fimmtudaginn 19. ágúst.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 20. ágúst, klukkan 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 3.  

Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, mun kynna uppgjörið og svara spurningum.  

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://vis.is/2-arsfjordungur-2021/ Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.   

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is