Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 18.01.2021

Tilnefningarnefnd VÍS tekur til starfa

Tilnefningarnefnd VÍS hefur hafið störf í samræmi við samþykktir félagsins og mun hún tilnefna frambjóðendur til setu í stjórn félagsins fyrir stjórnarkjör sem fer fram á aðalfundi félagsins föstudaginn 19. mars 2021.

Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til mánudagsins 8. febrúar 2021. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem unnt er að nálgast hér og á vefsvæði tilnefningarnefndar á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/tilnefningarnefnd/. Útfylltum eyðublöðum skal skila á netfangið: tilnefningarnefnd@vis.is.

Almennur framboðsfrestur til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefningarnefndar.

Rökstudd tillaga tilnefningarnefndar um bestu samsetningu stjórnar verður birt samhliða aðalfundarboði

Hægt er að koma þessum ábendingum sem og öðrum ábendingum um störf nefndarinnar á framfæri með því að senda tölvupóst á tilnefningarnefnd@vis.is, einnig er hægt að bóka fund með nefndinni sé þess óskað til að koma ábendingum á framfæri.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnefnd VÍS.