Góða ferð um landið
Eflaust er fátt yndislegra en fuglasöngur og lækjarniður í guðsgrænni náttúrunni. Sumarið er mætt með allri sinni dýrð og eflaust ferðahugur í mörgum. Ferðalög með eftirvagna er einfaldur ferðamáti og veitir frelsi til þess að elta veðrið. Mikilvægt er tryggja að allt fari vel og að eftirvagninn sé í góðu standi. Alvarlegustu slysin verða þegar vagnarnir losna aftan úr bílnum á ferð, fjúka útaf eða rása svo mikið að þeir fari yfir á rangan vegarhelming. Tryggjum að ferðin verði góð og allt sé í toppstandi.
Mikilvægt er að huga að eftirfarandi:
- Pössum að fara með vagninn í lögbundna skoðun.
- Eftirvagninn má ekki vera of þungur fyrir bílinn (sjá hámarksþyngd í skráningarskírteini).
- Vertu viss um að legur, dekk, ljósabúnaður og allur tengibúnaður sé í lagi.
- Að ökuréttindi nái yfir samanlagða þyngd bíls og eftirvagns.
- Farðu vel yfir búnað og tengingar við gas.
- Gættu þess að skrúfað sé fyrir gas eftir notkun.
- Hafðu eldvarnabúnað til staðar.
- Notaðu öryggisvír þegar vagninn er dreginn.
- Notaðu framlengda hliðarspegla ef vagninn byrgir sýn.
- Skoðaðu veðurspá áður en lagt er af stað.
- Tryggðu að svæðið fyrir aftan sé autt þegar þú þarft að bakka.
- Aktu með sérstakri gát á tjaldsvæðum.
- Farðu eftir umferðarlögum og miðaðu hraða ávallt við aðstæður.