Viðbótarkostnaður vegna innbústjóns
Ef þú þarft að flytja innbúið af heimilinu og geyma annars staðar á meðan viðgerðir standa yfir á bótaskyldu tjóni úr F plús tryggingunni þinni er kostnaður við flutninginn greiddur og tjón bætt ef innbúið skemmist í flutningnum.
Viðbótarkostnaður vegna innbústjóns er innifalin vernd í öllum F plús tryggingunum okkar.
Tryggingin bætir
- Tjón á innbúi af völdum slökkvi- og björgunaraðgerða.
- Kostnað vegna nauðsynlegs flutnings á innbúi í geymslu vegna innbústjóns.
- Tjón á innbúi sem verður í flutningi í geymslu vegna innbústjóns.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum F plús 1-4.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.