Stjórn VÍS
Hrund Rudolfsdóttir
Stjórnarmaður
Hrund Rudolfsdóttir var forstjóri Veritas sem samanstendur af móðurfélagi ásamt fjórum rekstrarfélögum. Hún hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum en hún var framkvæmdastjóri starfsþróunar hjá Marel, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjárfestingarverkefna hjá Milestone/Moderna Finance og rekstrarstjóri og síðar framkvæmdastjóri hjá Lyf & heilsu.
Hrund er með AMP stjórnunargráðu frá IESE háskólanum í New York, M.Sc gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School og Cand. Oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.