Hoppa yfir valmynd

Sjúkra­kostn­að­ar­trygging hesta

Sjúkrakostnaðartrygging hestaunderlineer góð trygg­ing fyr­ir alla hesta­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna lækn­is­kostnaðar í kjöl­far sjúk­dóms eða slyss.
  • Kaup­tíma­bil: Þú getur keypt trygginguna þar til hesturinn er 15 vetra gamall.
  • Trygg­ing­ar­fjár­hæð: Tryggingarfjárhæð sjúkrakostnaðartryggingar hesta er föst fjárhæð sem kemur fram á tilboði, tryggingarskírteini og endurnýjunarkvittun. Tryggingarfjárhæðin helst óskert þar til hesturinn verður 19 vetra gamall en þá lækkar hún um 20% árlega.
  • Gild­is­tími: Þegar hesturinn verður 23 vetra gamall fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.
  • Eig­in áhætta: Þú berð eigin áhættu af hverju tjóni sem þú færð greitt úr sjúkrakostnaðartryggingu hesta. Eigin áhætta þín er föst fjárhæð auk 10% af lækniskostnaði. Þú þarft ekki að greiða föstu fjárhæðina aftur vegna lækniskostnaðar, óháð fjölda heimsókna til dýralæknis, fyrr en að 100 dögum liðnum frá fyrstu heimsókn. Upplýsingar um eigin áhættu þína koma fram á tilboði, tryggingarskírteini og endurnýjunarkvittun.

Ef hesturinn hefur náð 5 vetra aldri þarf vottorð frá dýralækni um almennt heilsufar hestsins að fylgja með. Vottorðið verður að vera innan við 30 daga gamalt og skrifað á eyðublað frá VÍS.

Tryggingin bætir

  • Lækniskostnað vegna skoðunar og meðferðar vegna sjúkdóms eða slyss.
  • Lækniskostnað vegna bæklunaraðgerða vegna fæðingargalla folalds til 1 og 1/2 árs aldurs vegna ákveðinna sjúkdóma.
  • Lækniskostnað vegna folalds, frá kasti í allt að 30 daga, ef hryssa er líftryggð.
  • Lækniskostnað vegna meðferðar við tannrótarbólgu og meðhöndlun á tönnum sem brotna vegna slyss.

Tryggingin bætir ekki

  • Kostnað vegna sjúkraþjálfunar og endurhæfingar.
  • Kostnað vegna fóðurs, fæðubótarefnis og heilsu- og hreinlætisvara.
  • Lækniskostnað vegna sjúkdóma eða slysa sem áttu sér upphaf áður en tryggingin tók gildi.
  • Lækniskostnað vegna sjúkdóma sem hestur fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar.
  • Lækniskostnað vegna segulómskoðunar og sneiðmyndatöku.
  • Lækniskostnað vegna fyrirbyggjandi aðgerða og reglulegra skoðana.
  • Lækniskostnað vegna geldingar eða skurðaðgerðar vegna launeista.
  • Lækniskostnað vegna meðferðar til að fylja hryssu.
  • Lækniskostnað vegna skoðunar eða meðferðar á tönnum og aðgerðar við að fjarlægja úlfatennur.
  • Lækniskostnað vegna geðslagsvandamála.
  • Lækniskostnað vegna álags á lækniskostnað ef kalla þarf til dýralækni utan dagvinnutíma nema brýna nauðsyn beri til.
  • Kostnað vegna lyfseðla, reikningsgerðar, vottorða eða sjúkraskýrslu.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Takmörkuð líftrygging hesta

Tak­mörkuð líf­trygg­ing hesta er góð trygg­ing fyr­ir alla sem eiga tóm­stunda­hest. Ef þú ert með þessa trygg­ingu hesta færðu greidd­ar bæt­ur ef hest­ur deyr af völd­um slyss eða sjúk­dóms, ef taf­ar­laus af­líf­un er ráðlögð af dýra­lækni eða ef hest­ur hverf­ur og finnst ekki aft­ur inn­an 4 mánaða þrátt fyr­ir leit..

Lesa meira

Reiðhestatrygging

Reiðhesta­trygg­ing er góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur keppn­is­hesta. Í trygg­ing­unni er tak­mörkuð líf­trygg­ing og af­notamiss­is­trygg­ing vegna reiðar.

Lesa meira

Kynbótahryssutrygging

Kyn­bóta­hryssu­trygg­ing er góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur kyn­bóta­hryssa. Í trygg­ing­unni er tak­mörkuð líf­trygg­ing og af­notamiss­is­trygg­ing vegna kyn­bóta­rækt­un­ar. Í henni er einnig fyl og fol­alda­trygg­ing sem gild­ir þangað til fol­ald er 30 daga gam­alt.

Lesa meira

Góðhestatrygging

Góðhesta­trygg­ing er víðtæk­asta hesta­vernd­in okk­ar og góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur keppn­is­hesta. Í trygg­ing­unni er líf­trygg­ing og af­notamiss­is­trygg­ing vegna reiðar.

Lesa meira

Ófrjósemistrygging fyrir stóðhesta

Ófrjó­sem­is­trygg­ing er góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur stóðhesta. Trygg­ing­in er af­notamiss­is­trygg­ing vegna rækt­un­ar. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna var­an­legr­ar ófrjó­semi stóðhests af völd­um slyss eða sjúk­dóms.

Lesa meira

Ábyrgðartrygging hesta

Ábyrgðartrygg­ing hesta er góð trygg­ing fyr­ir alla hesta­eig­end­ur. Trygg­ing­in bæt­ir kostnað sem get­ur fallið á þig sam­kvæmt skaðabóta­lög­um ef hest­ur í þinni eigu veld­ur þriðja aðila lík­ams- eða muna­tjóni.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með sjúkra­kostn­að­ar­trygg­ingu hesta?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með sjúkrakostnaðartryggingu hesta?
Forvarnir
Frítími

Hestamennska

Áætlað er að 30.000 ein­stak­ling­ar stundi hesta­mennsku á einn eða ann­an hátt á land­inu. Skráðir fé­lag­ar hjá Land­ssam­bandi hesta­manna­fé­laga eru um 12.500 í 39 fé­lög­um og ætlaður fjöldi hesta á land­inu er um 92.000. Í bæk­lingi VÍS, Öryggi í hesta­mennsku, er að finna fróðlegt efni sem snýr að ör­ugg­um út­reiðum fyr­ir knapa, öku­menn og aðra.  
Lesa meira

Ef þú ert með dýratryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText