Selja bíl
Það þarf að tilkynna eigendaskipti skráningarskyldra ökutækja til Samgöngustofu. Eftir að eigendaskiptin hafa verið tilkynnt eru þær upplýsingar sendar til okkar. Þú þarft því ekki að láta okkur vita ef þú selur bílinn þinn.
Algengt er að selja notaða bíla í gegnum bílasölur og greiða sölulaun fyrir þá þjónustu en þú getur einnig séð um söluna án aðkomu bílasölu.
Í spurningasafninu okkar finnur þú svör við mörgum algengum spurningum.
Við mælum með að þú skoðir þetta!
Hafðu samband eða kíktu í heimsókn ef þú hefur einhverjar spurningar — við aðstoðum þig með ánægju.