Hoppa yfir valmynd

Lögboðin sjúklingatrygging

Samkvæmt nýjum lögum færist lögboðin sjúklingatrygging frá tryggingafélögum til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) frá og með 1. janúar 2025.

Lögboðin sjúklingatrygging SÍ mun taka til tjónsatvika sem verða frá og með 1. janúar 2025. Hins vegar byggir sjúklingatrygging tryggingafélaganna á kröfugerðarreglu og nær hún því yfir kröfur sem koma upp á tryggingatímabilinu þrátt fyrir að atvik sem leiddu til kröfu hafi verið fyrr.

Til þess að koma í veg fyrir að gat myndist í tryggingavernd heilbrigðisstarfsfólks vegna fyrri ára verður heilbrigðisstarfsfólk að vera áfram tryggt hjá sínu tryggingafélagi með svokallaðri sólarlagsvernd.

Sjá nánari umfjöllun:

Dæmi: Ef atvik er tilkynnt eftir 1. janúar 2025 og atvikið átti sér stað í byrjun árs 2024 þá mun nýja lögboðna sjúklingatryggingin ekki taka á atvikinu og ekki heldur sjúklingatryggingin sem viðkomandi er með í dag þar sem hún fellur niður um áramót.

  • Við gefum út sólarlagsvernd til allra viðskiptavina sem voru með gilda sjúklingatryggingu áramótin 2024/2025. Tryggingin gildir frá 1. janúar 2025 til 31. desember 2034.
  • Einungis er greitt fyrir trygginguna á árinu 2025.
  • Sólarlagsverndin er eins og sjúklingatrygging er í dag hjá okkur og byggir einnig á kröfugerðarreglu.
  • Sólarlagsverndin mun taka á hugsanlegum ótilkynntum atvikum sem áttu sér stað fyrir 1. janúar 2025.

Tryggingin greiðir

  • Bætur vegna líkamlegs eða geðræns tjóns sjúklings.
  • Bætur til þeirra sem sjúklingur hefur á framfæri ef hann deyr vegna mistaka hins tryggða.

Tryggingin greiðir ekki

  • Bætur vegna líkamstjóns eða geðræns tjóns annarra en sjúklingsins sjálfs.
  • Sektir og önnur viðurlög sem kunna að falla á þig.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Frjálsar starfsábyrgðartryggingar

Við bendum heilbrigðisstarfsfólki á mikilvægi þess að tryggja sér viðbótarvernd með frjálsri starfsábyrgðartryggingu. Slík vernd getur mætt tjóni umfram hámarksfjárhæðir sjúklingatryggingar þegar skaðabótaábyrgð stofnast samkvæmt íslenskum lögum og ýmsum öðrum bótakröfum sem kunna að koma fram í tengslum við starfsemi viðkomandi.

Starfsábyrgðartrygging sjálfstætt starfandi lækna, tannlækna eða heilbrigðisstarfsfólks

  • Ábyrgðartryggingu sjálfstætt starfandi lækna, tannlækna og heilbrigðsstarfsfólks er ætlað að bæta tjón sjúklings/skjólstæðings eða þriðja aðila.
  • Ábyrgðartryggingin er ekki skyldutrygging en við leggjum ríka áherslu á að sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk taki þessa tryggingu til viðbótar við sjúklingatryggingu.
  • Ef þessi trygging er nú þegar til staðar er mikilvægt að halda áfram að vera með hana.

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar

  • Ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar er ætlað að bæta tjón þriðja aðila þegar rekstrarstaðili verður skaðabótaskyldur samkvæmt íslenskum lögum.
  • Hún tekur ekki til tjóns sem sjúklingur/skjólstæðingur heilbrigðisstarfsfólks verður fyrir í tengslum við starf viðkomandi og er því ekki viðbót við sjúklingatryggingu.

Ef þú ert ekki með starfsábyrgðartryggingu lækna, tannlækna eða heilbrigðisstarfsfólks mælum við eindregið með því að þú hafir samband við okkur og fáir frekari ráðgjöf hjá starfsfólki okkar.

Þú getur séð yfirlit yfir tryggingarnar þínar með því að skrá þig inn á vefinn okkar.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.

Aðrar upplýsingar

Skoða fleiri tryggingar

Við mælum með því að öll fyrirtæki stór og smá séu með ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar, slysatryggingu launþega og lausafjártryggingu.

Ábyrgð­ar­trygging atvinnu­rekstrar

Tryggingin er ætluð fyrirtækjum og rekstraraðilum í þeim tilgangi að bæta tjón þegar skaðabótaábyrgð skapast.

Slysa­trygging laun­þega

Atvinnurekendur eru samkvæmt kjarasamningum skyldugir að bæta slys sem starfsfólk verður fyrir í vinnu sinni. Slysatrygging launþega er sniðin að þörfum atvinnurekenda til að uppfylla skyldur sínar gagnvart starfsfólki sínu.

Slysa­trygging

Slysatrygging er fyrir einyrkja og þau sem eru ekki í stéttarfélagi. Hún er einnig fyrir þau sem eru slysatryggð en vilja eiga rétt á hærri bótum eða víðtækari vernd.

Sjúkra­trygging

Sjúkratrygging er fyrir þau sem vilja vera vel tryggð ef þau fá sjúkdóm og geta ekki stundað vinnu sína lengur.

Lausa­fjár­trygging

Tryggingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign. Má þar nefna vélar, lager, tölvubúnað, húsgögn og verkfæri.

Víðtæk eigna­trygging

Tryggingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign.

Rekstr­ar­stöðv­un­ar­trygging

Tryggingin bætir rekstrartap sem verður við stöðvun rekstrar og leiðir af sér samdrátt í sölu eða þjónustu.

Lögboðin ábyrgð­ar­trygging ökutækis

Skyldutrygging fyrir öll ökutæki. Tryggingin bætir tjón sem ökutækið þitt veldur öðrum sem og slys sem þú eða sá sem keyrir ökutækið verður fyrir.

Kaskó­trygging ökutækis

Kaskótrygging bætir öll tjón á bílnum þínum nema annað sé tekið fram í skilmála eða skírteini.

Vinnu­véla­trygging

Tryggingin tekur á tjónum sem verða á tryggðri vinnuvél vegna skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks.

Húseig­enda­trygging atvinnu­hús­næðis

Tryggingin veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á fasteignum.

Víðtæk flutn­ings­trygging

Tryggingin er fyrir þá sem láta flytja fyrir sig verðmæti með viðurkenndum flutningsaðila milli landa eða innanlands.