Keppnisviðauki akstursíþrótta
Í flestum akstursíþróttum er gerð krafa um að keppendur og skráningarskyld ökutæki séu tryggð. Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja tryggir þó ekki tjón sem verða í viðurkenndum aksturskeppnum nema að keppnisviðauki akstursíþrótta sé til staðar.
Keppnisviðaukinn tekur á því tjóni sem þú getur valdið öðrum en hann inniheldur ekki kaskótryggingu og bílrúðutryggingu sem tekur á tjóni á eigin ökutæki. Hægt er að kaupa keppnisviðauka sem gildir í sjö daga eða sex mánuði og er hann eingöngu gefinn út fyrir keppnir á Íslandi. Verð miðast við áhættu þar sem flokkur 1 ber minnsta áhættu og flokkur 3 mesta áhættu.
Hafðu samband ef þú vilt sækja um viðaukann. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja með:
- Í hvaða akstursíþrótt ökutækið verður notað.
- Kennitala tryggingartaka.
- Skráningarnúmer ökutækis.
- Gildistími sem óskað er eftir, 7 dagar eða 6 mánuðir.
- Hvort óskað er eftir slysatryggingu.
Almennt inniheldur lögboðin ökutækjatrygging ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda. Við bendum sérstaklega á að slysatrygging ökumanns og eiganda er valfrjáls trygging fyrir torfærutæki sem eru ekki í almennri umferð t.d. flesta vélsleða, krossara og fjórhjól.
Skráningarskyld ökutæki (vélsleðar, fjórhjól og bifhjól undanskilin)
Keppnisviðaukanum fylgir slysatrygging ökumanns og eiganda.
Vélsleðar, fjórhjól og bifhjól
Keppnisviðaukanum fylgir ekki slysatrygging ökumanns og eiganda nema að viðkomandi sé með valkvæða slysatryggingu ökumanns og eiganda í gildi.
Óskráningarskyld ökutæki
Í þeim akstursíþróttum þar sem keppt er á ökutækjum sem eru ekki skráningarskyld er oftast krafist ábyrgðartryggingar í keppnum. Viðskiptavinir VÍS geta keypt frjálsa ábyrgðartryggingu í þeim tilfellum og jafnframt tryggt ökumenn með kaupum á slysatryggingu.
Algengar spurningar um akstursíþróttir og tryggingar
Hafðu samband eða kíktu í heimsókn ef þú hefur einhverjar spurningar — við aðstoðum þig með ánægju.