Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 29.03.2022

Alvotech hlýtur forvarnaverðlaun VÍS 2022

Forvarnaráðstefnu VÍS 2022 lauk nú fyrir skemmstu en ráðstefnan er sú stærsta á sínu sviði þar sem öryggismál og forvarnir fyrirtækja og stofnana eru skoðuð frá öllum hliðum. Þrjú fyrirtæki þóttu standa upp úr í forvarnamálum á síðasta ári en það voru Alvotech, Þúsund Fjalir og Ístak.

Við erum stolt af samstarfinu við Alvotech og óskum starfsfólki fyrirtækisins innilega til hamingju!

Alvotech hlaut verðlaunin að þessu sinni en fyrirtækið er fyrirmyndarfyrirtæki í forvörnum og öryggismálum. Því fylgir mikil ábyrgð að framleiða lyf og því eru öryggismál algjört forgangsatriði. Helsta áskorun fyrirtækisins í öryggismálum er ör vöxtur, ­fjölgun starfsstöðva og koma nýrra starfsmanna af ólíkum þjóðernum.

Með góðri skipulagningu, fræðslu og áherslu á mikilvægi stafrænna lausna í öryggismálum starfsmanna, s.s. aðgengi að atvikaskráningu, öryggisblöðum, öryggisfræðslu og þjálfunarefni, er Alvotech vel að þessum verðlaunum komið.