Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 09.11.2021

„Afar farsælt samstarf“

Nýlega var skrifað undir samning milli Norðurþings og VÍS um tryggingar sveitarfélagsins til næstu þriggja ára.

Drífa Valdimarsdóttir, staðgengill sveitarstjóra Norðurþings, ásamt  Þorvaldi Þorsteinssyni, viðskiptastjóra hjá VÍS.
Drífa Valdimarsdóttir, staðgengill sveitarstjóra Norðurþings, ásamt Þorvaldi Þorsteinssyni, viðskiptastjóra hjá VÍS.

Farsælt samstarf hefur verið milli VÍS og Norðurþings í hátt í fjóra áratugi og því er mikil ánægja með að samstarfið haldi áfram. Samningur var gerður eftir útboð hjá Conscello ehf. ─ löggildri vátryggingamiðlun.

Í samstarfinu hefur verið áhersla á forvarnir og stefnt er að því að Norðurþing verði fremst meðal annarra sveitarfélaga í forvörnum.

„Ég er stoltur af því að samstarf milli VÍS og Norðurþings haldi áfram. Þetta hefur verið afar farsælt samstarf ─ og ég hlakka virkilega til framhaldsins.“ sagði Þorvaldur Þorsteinsson, viðskiptastjóri hjá VÍS.

Drífa Valdimarsdóttir, staðgengill sveitarstjóra, var einnig ánægð með samstarfið sem og áherslu VÍS á forvarnir. „Samstarfið við VÍS spannar fjóra áratugi og hefur gengið vel. Áhersla VÍS á forvarnir skiptir okkur miklu máli. Við erum því spennt að vinna að því markmiði að vera fremst meðal annarra sveitarfélaga í forvörnum. Við hlökkum því til áframhaldandi samstarfs.“