Hoppa yfir valmynd Varúðarviðmið um vind
- Árlega fjúka ökutæki útaf vegum landsins og þá helst rútur, bæði stórar og smáar, vöruflutningabílar og húsbílar.
- Til að koma í veg fyrir slík tjón er einfaldast að fara eftir varúðarviðmiðum um vind og færð.
- Ef vindur mælist 24m/sek og það er fljúgandi hálka. Þá er skynsamlegt að hinkra og bíða eftir að vind lægi.
- Ef vindur mælist 28m/sek þá er vonandi búið að loka veginum og þú bíður af þér veðrið.
- Á vef Vegagerðarinnar má einnig nálgast upplýsingar um færð á vegum.