Hoppa yfir valmynd

Evrópska sjúkratryggingakortið

Þegar Íslendingar ferðast í löndum EES og Sviss eiga þeir rétt á þjónustu sjúkrahúsa innan almenna heilbrigðiskerfisins séu þeir handhafar Evrópska sjúkratryggingarkortsins.

Þess ber þó að geta að undanskilinn er kostnaður sem fellur til á einkasjúkrahúsum og allur sjúkraflutningur.
Þennan kostnað má krefja úr F plús, kreditkortatryggingum eða stökum ferðatryggingum.

Til þess að eiga rétt á þjónustu gjaldfrjálst þarf að framvísa Evrópska sjúkratryggingarkortinu.
Kortið fæst hjá Sjúkratryggingum Íslands og er einfalt að sækja um kortið á heimasíðu þeirra.

Evrópska sjúkratryggingakortið