Hoppa yfir valmynd

Sjúkra­kostn­að­ar­trygging katta

Sjúkrakostnaðartrygging kattaunderlineer góð trygg­ing fyr­ir alla katt­ar­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna lækn­is­kostnaðar í kjöl­far sjúk­dóms eða slyss.
  • Kaup­tíma­bil: Þegar köttur er á aldrinum 8 vikna til 5 ára.
  • Trygg­ing­ar­fjár­hæð: Trygg­ing­ar­fjár­hæð sjúkra­kostnaðartrygg­ing­ar katta er föst fjárhæð sem kemur fram í tilboði, á tryggingarskírteini og endurnýjunarkvittun. Tryggingarfjárhæðin helst óskert þar til kötturinn verður 7 ára en þá lækkar hún um 20% árlega.
  • Gild­is­tími: Þegar kötturinn verður 10 ára fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.
  • Eig­in áhætta: Þú berð eigin áhættu af hverju tjóni sem þú færð greitt úr sjúkrakostnaðartryggingu katta. Eigin áhætta þín er föst fjárhæð auk 10% af lækniskostnaði. Þú þarft ekki að greiða föstu fjárhæðina aftur vegna sjúkrakostnaðar, óháð fjölda heimsókna til dýralæknis, fyrr en að 100 dögum liðnum frá fyrstu heimsókn. Upplýsingar um eigin áhættu þína koma fram á tilboði, tryggingarskírteini og endurnýjunarkvittun.

Tryggingin bætir

  • Lækniskostnað vegna skoðunar og meðferðar vegna sjúkdóms eða slyss.
  • Lækniskostnað vegna keisaraskurðar sem er læknisfræðilega nauðsynlegur, þó aldrei fleiri en tvo á hverja læðu.
  • Lækniskostnað vegna geldingar eða ófrjósemisaðgerðar sem er læknisfræðilega nauðsynleg vegna ákveðinna sjúkdóma.
  • Lækniskostnað vegna lýtalækninga sem eru læknisfræðilega nauðsynlegar.
  • Lækniskostnað vegna meðhöndlunar á tönnum sem brotna vegna slyss.

Tryggingin bætir ekki

  • Lækniskostnað vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
  • Lækniskostnað vegna fyrirbyggjandi aðgerða og reglulegra skoðana.
  • Lækniskostnað vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests eða skapgerðargalla.
  • Lækniskostnað vegna álags á lækniskostnað ef kalla þar dýralækni til utan dagvinnutíma nema brýna nauðsyn beri til.
  • Lækniskostnað vegna segulómskoðunar og sneiðmyndatöku.
  • Lækniskostnað vegna sjúkdóma í tannholdi, tannhirðu, tannviðgerða eða galla í tönnum.
  • Kostnað vegna fóðurs, fæðubótarefnis eða heilsu- og hreinlætisvara.
  • Ferða- og flutningskostnað vegna meðferðar og skoðunar.
  • Kostnað vegna sjúkraþjálfunar og endurhæfingar.
  • Kostnað vegna lyfseðla, reikningsgerðar, vottorða eða sjúkraskýrslu.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Líftrygging katta

Líf­trygg­ing katta er góð trygg­ing fyr­ir alla katt­ar­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur ef kött­ur deyr af völd­um slyss eða sjúk­dóms eða ef af­líf­un er ráðlögð af dýra­lækni.

Lesa meira

Afnotamissistrygging katta

Af­notamiss­is­trygg­ing katta er góð trygg­ing fyr­ir alla sem eiga kött sem notaður er í kyn­bótarækt­un. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur ef kött­ur­inn tap­ar eig­in­leik­um sín­um til kyn­bóta­rækt­un­ar. Bæt­ur eru ekki greidd­ar fyr­ir en kött­ur­inn hef­ur verið geld­ur. Af­notamiss­is­trygg­ingu katta get­ur þú ein­ung­is keypt með líf­trygg­ingu katta.

Lesa meira

Umönnunartrygging katta

Umönn­un­ar­trygg­ing katta er góð trygg­ing fyr­ir alla katt­ar­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna vist­un­ar katt­ar á dýra­hót­eli ef þú get­ur ekki ann­ast hann heima vegna tíma­bund­ins sjúk­dóms eða slyss heim­il­is­fólks.

Lesa meira

Ábyrgðartrygging katta

Ábyrgðartrygg­ing katta er góð trygg­ing fyr­ir alla katt­ar­eig­end­ur. Trygg­ing­in bæt­ir kostnað sem get­ur fallið á þig sam­kvæmt skaðabóta­lög­um ef kött­ur í þinni eigu veld­ur þriðja aðila lík­ams- eða muna­tjóni.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með sjúkra­kostn­að­ar­trygging katta?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með sjúkrakostnaðartrygging katta?
Forvarnir
Heimilið

Heimilisdýr

Algengustu heimilisdýrin eru án efa hundar og kettir. Þau gefa eiganda sinum mikið og eru oft á tíðum stór partur af fjölskyldunni. Góð umhirða þeirra er mikilvæg til að þeim líði vel.
Lesa meira

Ef þú ert með dýratryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText