Fréttasafn

|

04.11.2020

Um helm­ingur notar farsímann undir stýri

Alltof algengt er að ökumenn noti farsímann undir stýri, samkvæmt nýlegri könnun sem Zenter rann­sóknir fram­kvæmdi fyrir VÍS.

Alltof algengt er að ökumenn noti farsímann undir stýri, samkvæmt nýlegri könnun sem Zenter rann­sóknir fram­kvæmdi  fyrir VÍS. Þar kemur fram að 46% aðspurðra tala einhvern tímann í farsím­ann, án hand­frjáls búnaðar, á meðan akstur stendur yfir. Athygli vekur að 56% aðspurðra á aldr­inum 18-44 ára sögðust gera það sjaldan, stundum, oft eða alltaf.

36% þeirra, sem tóku þátt í könn­un­inni, skrifa einhvern tímann skilaboð í farsímann á meðan akstur stendur yfir ─ en tölu­verður munur var milli aldurs­hópa hvað þetta varðar. Þannig segjast 73% ökumanna á aldr­inum 18-24 ára skrifa skilaboð sjaldan, stundum, oft eða alltaf. 53% þeirra á aldr­inum 25-34 ára skrifa skilaboð sjaldan, stundum, oft eða alltaf ─ og 55% þeirra á aldr­inum 35-44 ára gera það sjaldan, stundum, oft eða alltaf. 

Ljóst er að margir freista þess að lesa á símann undir stýri því 57% þeirra sem tóku þátt í könn­unni viður­kenndu að gera það sjaldan, stundum, oft eða alltaf. Lang­flestir eru á aldr­inum 18-24 ára eða 85%. Lítill munur er á aldurs­hópnum 25-34 ára og 35-44 ára ─ eða 78% og 74%.

Farsíma­notkun stærsti áhættu­þátt­urinn

Farsíma­notkun undir stýri er því tals­vert mikil hjá yngri aldurs­hópum, s.s. á aldr­inum 18-24 ára. Þess ber að geta að notkun farsíma skerðir athygli við akstur. Farsíma­notkun bitnar á skynjun ökumanna á umhverfinu og viðbragðs­tíma, t.d. að hemla eða beygja frá hættu. Samkvæmt rann­sóknum Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar (e. WHO) eru þeir ökumenn, sem verða fyrir truflun vegna farsíma, fjórum sinnum líklegri til þess að valda umferð­ar­slysum (þar á meðal aftaná­keyrslu, útafa­kstri og árekstri).[1] Á vef Alþjóða­heil­brigð­stofn­un­ar­innar kemur fram að skert athygli við akstur vegna farsíma­notk­unar sé einn stærsti áhættu­þáttur umferð­ar­slysa á heimsvísu.[2]

Jákvætt viðhorf til Ökuvísis

Í könn­un­inni var einnig kannað viðhorf til Ökuvísis sem er ný tegund af trygg­ingum á Íslandi ─ en gert er ráð fyrir fyrstu útgáfu nýs apps fyrir lok þessa árs. 40% aðspurðra var jákvæður gagn­vart slíkri trygg­ingu. Yngsti aldurs­hóp­urinn var enn jákvæðari eða 56%. Ökuvísir, sem er bylt­ing­ar­kennd nýjung hér á landi, hjálpar viðskipta­vinum VÍS að lenda sjaldnar í slysum. Appið gefur ökumann­inum einkunn ─ og farsíma­notkun er einn þeirra fimm þátta sem myndar akst­ur­s­ein­kunn­ina. Tilgang­urinn með Ökuvísi er að fækka bílslysum á Íslandi.

[1] https://www.who.­int/pu­blicati­ons/i/item/mobile-p­ho­ne-u­se-a-grow­ing-problem-of-dri­ver-d­istraction

[1]https://www.who.­int/­news-room/fact-s­heets/detail/roa­d-traffic-­inj­uries

Fréttasafn
Deila frétt