Hoppa yfir valmynd

Kynbótahryssutrygging

Góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur kyn­bóta­hryssa. Í trygg­ing­unni er tak­mörkuð líf­trygg­ing og af­notamiss­is­trygg­ing vegna kyn­bóta­rækt­un­ar. Í henni er einnig fyl- og fol­alda­trygg­ing sem gild­ir þangað til fol­ald er 30 daga gam­alt.

Ef þú ert með kynbótahryssutrygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur ef hryssa deyr af völd­um slyss eða sjúk­dóms, ef taf­ar­laus af­líf­un er ráðlögð af dýra­lækni eða ef hryssa hverf­ur og finnst ekki aft­ur inn­an 4 mánaða þrátt fyr­ir leit.

Þú færð einnig greiddar fullar bætur ef hryssa er úrskurðuð ónothæf til ræktunar í kjölfar tiltekins sjúkdóms eða slyss. Full­ar bæt­ur fyr­ir af­notamissi fást ef hryssa er felld en hluta­bæt­ur ef ákveðið er að hryssa skuli lifa. Þá eru einnig greiddar bætur sem nema 10% af líftryggingarfjárhæð hryssunnar fyrir fyl í hryssu eða folald þangað til folaldið er 30 daga gamalt ef hryssan er á aldrinum 3-18 vetra gömul.

  • Kaup­tíma­bil: Þegar hryssa er 3-15 vetra gömul.
  • Vottorð: Ef tryggingarfjárhæð nær 1.000.000 kr. þarf vottorð frá dýralækni um almennt heilsufar hryssunnar að fylgja umsókn um trygginguna. Vottorðið verður að vera innan við 30 daga gamalt og skrifað á eyðublað frá VÍS.
  • Trygg­ing­ar­fjár­hæð: Tryggingarfjárhæð takmarkaðrar líftryggingar er valfrjáls upphæð. Gott er að hafa í huga að bætur geta aldrei orðið hærri en markaðsvirði hryssunnar. Tryggingarfjárhæð afnotamissistryggingar er sama upphæð og tryggingarfjárhæð líftryggingarinnar að frádregnum 100 þúsund krónum. Tryggingarfjárhæð fyl- og folaldatryggingar er 10% af tryggingarfjárhæð líftryggingar hryssunnar. Tryggingarfjárhæðirnar koma fram á tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun. Tryggingarfjárhæðirnar haldast óskertar þar til hryssan verður 19 vetra gömul en þá lækka þær um 20% árlega.
  • Gild­is­tími: Þegar hryssan verður 23 vetra gömul fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.

Innifalið í kynbótahryssutryggingu

Takmörkuð líftrygging hesta
Afnotamiss­is­trygging vegna kynbóta­rækt­unar
Fyl- og folaldatrygging
  • Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
  • Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar
Forvarnir
Frítími

Hestamennska

Skráðir fé­lag­ar hjá Land­ssam­bandi hesta­manna­fé­laga eru vel yfir 12.000 í 45 fé­lög­um og ætlaður fjöldi hesta á land­inu er um 92.000. Hestaslys geta verið alvarleg og forvarnir því mjög mikilvægar.
Lesa meira