Fréttasafn

|

19.03.2020

Unnið að heiman

Margir vinna heima þessa dagana sem gengur eflaust misvel. Sér í lagi ef börn eru á heim­ilinu sem þarf að sinna. Hafðu eftir­far­andi atriði í huga til þess að tryggja að allt gangi sem best.

Hver er stærsta áskor­unin?

Stærsta áskorun þeirra starfs­manna, sem mæta ekki daglega á starfs­stöð, er að halda uppi rútínu og venju. Auðvelt er fyrir þann sem er heima að hægja aðeins á eða fresta hlutum. Besta leiðin til þess að halda gleð­inni er því rútínan. Fara að sofa og vakna á svip­uðum tíma. Taka sér matarpásur og velja hollan mat umfram rusl­fæði. Standa reglu­lega upp og teygja úr sér. Stjórn­endur geta t.d. aðstoðað með því að setja á dagskrá daglegan stöðufund með vefmyndavél eða síma. Þannig er komin skýr byrjun á deginum, skýr samskipta­leið og skuld­binding með teym­inu.

Vinnu­að­staða

Mikil­vægt er að vinnu­að­staðan heima sé góð svo okkur líði sem best. Ekki vinna í sófanum eða rúminu heldur við almenni­legt borð og á góðum stól. Ef þú ert ekki með skrif­borð þá er stofu­borðið eða eldhús­borðið góður kostur. Ekki hika við að færa borðið í rýmið sem þú vilt vinna í. Gott er að velja rými sem er lítið notað af öðru heim­il­is­fólki. Þrátt fyrir að hægt sé að vinna á fartölvu þá hentar hún ekki endi­lega til lengri vinnu. Vertu því með góðan skjá, lykla­borð og mús sem þægi­legt er að nota til lengri tíma. Netið þarf að vera gott og með góðu gagna­magni.

Hreyfing er nauð­synleg

Oft er ekki mikill félags­skapur í boði þegar vinna þarf heima. Nema auðvitað að fleiri á heim­ilinu séu heima við. Nauð­syn­legt að taka frá tíma til þess að hreyfa sig, þó ekki sé nema að fara út í göngu­túr. Fá sér ferskt loft og orku í kroppinn sem ýtir undir betra vinnu­framlag þegar aftur heim er komið.

Ekki tapa þér í frétt­unum

Stöðugt berast nýjar fréttir af COVID-19. Taktu þér endi­lega pásu frá þeim. Gott er að kíkja einu sinni yfir daginn á stöðu mála. Að lifa og hrærast í fréttum gerir fæstum gott nema að þú hafir atvinnu af því. Svo gæti verið góð hugmynd að taka einn og einn frétta­lausan dag.

Haltu uppi öflugum samskipta­leiðum

Leyfðu tækn­inni að vinna með þér. Til eru margar öflugar samskipta­leiðir sem reynast vel. Til að byrja með getur tæknin verið flókin. Við erum öll að finna taktinn og þurfum að venjast nýjum aðstæðum og aðferðum. Sláðu oftar á þráðinn til vinnu­fé­lag­anna en styttu samtölin í stað­inn. Hafðu líka í huga að athuga hvernig örygg­is­mál­unum er háttað hjá samskiptamiðl­inum ef upplýs­ing­arnar eru viðkvæmar.

Stella 5 ára var að bóka þig á fund

Skólar eru lokaðir eða með minni þjón­ustu­stig og íþróttir barna hafa víða fallið niður. Börnin eru því heima og vilja sína athygli. Starfs­fólk með börn og skyldur heima fyrir, eiga ekki auðvelt með að vera eins afkasta­mikið heima fyrir. Spjallaðu við samstarfs­fólkið um hvernig og með hvaða hætti þau telja best að sinna starfi sínu. Jafn­vægi og sveigj­an­leiki milli vinnu og einka­lífs er hagur allra.

Mamma er í vinn­unni núna

Það getur verið freist­andi að leyfa börn­unum að horfa meira á sjón­varp eða að nota snjall­tæki sem barnapíur. En hvernig lítur það út ef að ástandið verður langvar­andi? Börnin þurfa í raun tvennt sem mest á meðan þessu stendur: Athygli og rútína. Í stað þess að leita að rafrænum barnapíum, teiknaðu þá upp hvernig dagurinn getur litið út ef núver­andi ástand varir lengi. Þú getur t.d. skipt deginum upp og gert stunda­skrá fyrir alla á heim­il­inu. Þannig að allir hafi sín verk­efni yfir daginn. Þá er auðveldara að bera virð­ingu fyrir tíma annarra. Sameig­in­legur morg­un­matur getur verið á dagskrá áður en allir fara í sín verk­efni. Krakk­arnir geta æft lestur á meðan foreldri vinnur. Eftir það geta allir farið saman í göngutúr og fengið ferskt loft áður en næsta verk­efni er tekið fyrir.. Svona getur dagurinn gengið fyrir sig, koll af kolli. Þó að afrakst­urinn sé ekki sá sami og ef börnin væru í skóla og foreldrar á starfs­stöð, þá eru afköstin orðin meiri og athyglin á börnin meira gefandi.

Munum að þetta er tíma­bundið ástand. Að fást við veiruna og afleið­ingar hennar er verk­efni sem við öll verðum að taka þátt í. Ef við erum öll almanna­varnir þá ganga hlut­irnir betur. Gleymum ekki að sumarið er handan við hornið.

Fréttasafn
Deila frétt