Hoppa yfir valmynd

Forvarnaþjónusta

Öllum fyrirtækjum sem eru í tryggingum hjá okkur býðst ákveðin forvarnaþjónusta í samræmi við umfang viðskipta ásamt því að vera boðið á stærsta forvarnaviðburð sem haldinn er hér á landi á hverju ári eða Forvarnaráðstefnu VÍS.

Breidd fyrirtækja sem tryggja hjá okkur er mikil. Forvarnir eru nauðsynlegar hjá þeim öllum og lítum við svo á að eitt af hlutverkum okkar er að aðstoða þau við að auka öryggi hjá sér með það markmið að fækka tjónum og slysum og um leið auka fjárhagslegan ávinning sinn.

Rafræn forvarnafræðsla

Minni og meðalstór fyrirtæki fá senda reglulega fræðslu þar sem leitast er við að snerta sem flesta þætti sem snúa að öryggismálum fyrirtækja t.a.m. vinnuvernd, húsnæði, umferð og skráningu atvika og verka.

Fyrirtæki geta sent inn ábendingar um fræðslu sem þeim finnst vanta á forvarnir@vis.is

Stöðumat fyrirtækja

Stærri fyrirtækjum stendur til boða að fá starfsmann VÍS í heimsókn til að framkvæma stöðumat fyrirtækja. Það veitir stjórnendum góða sýn yfir stöðu öryggismála og forvarna í starfseminni.

  • Með stöðumati geta stærri fyrirtæki og fyrirtæki í áhættusömum rekstri séð hvar þau standa í öryggis- og forvarnamálum.
  • Fulltrúi VÍS kemur í vettvangsskoðun og tekur vinnustaðinn út í samvinnu við atvinnurekandann.
  • Ákveðnir forvarnaþættir eins og öryggismál starfsmanna, innbrotsvarnir, brunavarnir og umgengnismál eru metnir með stöðluðum gátlista.
  • Í kjölfarið fær fyrirtækið ákveðna forvarnaeinkunn ásamt yfirliti um stöðu þess í öryggis- og forvarnamálum og ef tækifæri eru til úrbóta er bent á þau.