Ábyrgðartrygging tannlækna
Ábyrgðartryggingu tannlækna er ætlað að bæta beint líkamstjón sjúklings eða þriðja aðila. Ábyrgðartryggingin er ekki skyldutrygging en við leggjum ríka áherslu á að tannlæknar taki þessa tryggingu til viðbótar við sjúklingatryggingu.
Tryggingin byggir á kröfugerðarreglu. Það þýðir að krafa eða vitneskja um kröfu þarf að hafa borist á meðan tryggingin er í gildi. Þó er það ekki skilyrði að tryggingin hafi verið í gildi þegar atburðurinn, sem olli tjóninu, átti sér stað.
Tryggingin bætir
- Líkams- eða munatjón vegna gáleysis.
Tryggingin bætir ekki
- Tjón sem þú berð ábyrgð á vegna vanefnda á samningi.
- Líkamstjón eða skemmdir á munum.
- Sektir og önnur viðurlög.
- Tjón vegna læknismeðferðar sem fellur utan hefðbundins starfssviðs.
- Tjón vegna skemmda á erfðaefnum sjúklings.
- Tjón vegna tilrauna með lyf eða vegna klínískra tilrauna.
- Tjón vegna notkunar á geislavirkum efnum eða vegna annarra aðferða til læknismeðferðar í rannsóknartilgangi.
- Tjón sem leiðir af skaðsemisábyrgð sem fellur á þig.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.