Gott að vita um útivist
Ánægjulegt er að sjáþann fjölda sem stundar útivist sér til ánægju og heilsueflingar. Enda er fjölbreytnin mikil og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Allt frá hálftíma útiveru upp í margra daga ferðir. Þar er líka himinn og haf á milli búnaðar og undirbúnings. Árstími hefur einnig mikið að segja í þeim efnum. Búnaður í sól og hita er allt annar en þegar vænta má storms og gadds.
Viltu vita meira?
Hvað ber að hafa í huga
- Klæðnaður og skóbúnaður í takt við verður og aðstæður.
- Hlaðinn síma er alltaf gott að hafa ef eitthvað kemur uppá, líka bara í stuttum göngutúr.
- Taka mið af veðurkælingu. Þegar eru 0°C úti og 10 m/sek þá er hitastigið í raun -7°C.
- Í lengri ferðum er góður undirbúningur á útbúnaði, staðháttum og veðurfari gríðarlega mikilvægur.