Ábyrgðartrygging lækna
Ábyrgðartryggingu lækna er ætlað að bæta beint tjón sjúklings eða þriðja manns. Ábyrgðartryggingin er ekki skyldutrygging en við leggjum ríka áherslu á við lækna að þeir taki þessa tryggingu til viðbótar við sjúklingatryggingu.
Tryggingin byggir á kröfugerðarreglu. Það þýðir að krafa eða vitneskja um kröfu þarf að hafa borist á meðan tryggingin er í gildi. Þó er það ekki skilyrði að tryggingin hafi verið í gildi þegar atburðurinn, sem olli tjóninu, átti sér stað.
Tryggingin bætir
- Líkams- eða munatjón vegna gáleysis.
Tryggingin bætir ekki
- Tjón sem þú berð ábyrgð á vegna vanefnda á samningi.
- Líkamstjón eða skemmdir á munum.
- Sektir og önnur viðurlög.
- Tjón vegna læknismeðferðar sem fellur utan hefðbundins starfssviðs.
- Tjón vegna lýta- og fegrunaraðgerða.
- Tjón vegna skemmda á erfðaefnum sjúklings.
- Tjón vegna tilrauna með lyf eða vegna klínískra tilrauna.
- Tjón vegna notkunar á geislavirkum efnum eða vegna annarra aðferða til læknismeðferðar í rannsóknartilgangi.
- Tjón vegna glasafrjóvgana, frjósemisaðgerða eða fóstureyðinga.
- Tjón vegna notkunar lyfja sem hafa þann tilgang að breyta þyngd sjúklings.
- Tjón sem leiðir af skaðsemisábyrgð er fellur á þig.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.