Eigur skipverja
Trygging fyrir eigum skipverja tryggir eigur skipverja um borð í hverri veiðiferð.
Útgerðarmanni ber samkvæmt sjómannalögum að bæta skipverja þann skaða sem verður á eigum hans um borð, komi til sjóslyss eða bruna.
Tryggingin bætir
- Tjón á eigum skipverja ef þær eyðileggjast við sjóslys eða bruna.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.