Hoppa yfir valmynd
Forvarnir

Athygli

Líklega geta allir tekið undir það að hafa verið í umferðinni með athyglina á öðrum stað og eitthvað óvænt gerst sem mátti sjá fyrir. Það er nefnilega svo einfalt að umferðin krefst þess að við séum úthvíld og með fókusinn á réttum stað.

Sá þáttur sem án efa tekur mesta athygli frá okkur í umferðinni er síminn. Hér á landi er ökumönnum óheimilt að tala í síma við akstur án handfrjáls búnaðar. En skiptir það öllu? Rannsóknir sýna að notkun handfrjáls búnaðar eykur ekki umferðaröryggi heldur er það símtalið sjálft sem hefur truflandi áhrif á aksturinn en ekki bara það að vera með aðra hönd á stýri til að halda á símanum.

Það er ákvörðun ökumanna hvort þeir tali í símann við akstur eða sleppi því alveg. Hringi frekar þegar bíllinn hefur verið stöðvaður og stuðli þannig að auknu öryggi sínu. Aftur á móti ætti aldrei að lesa eða senda skilaboð um leið og ekið er eða sinna öðru í síma sem krefst þess að augun séu tekin af veginum. Á 90 km/klst. jafngildir að ekið sé blindandi yfir fótboltavöll ef horft er á símann í um 5 sekúndur sem er meðaltími þess sem ökumenn líta af veginum og á símann til að lesa eða senda skilaboð.