Kaskótrygging ökutækis
Saman pössum við upp á bílinn þinn, hvort sem hann er tryggður með hefðbundinni kaskótryggingu eða kaskótryggingu Ökuvísis.
Þegar þú kaupir kaskótryggingu þá velur þú þína eigin áhættu. Það er sú upphæð sem þú greiðir ef þú lendir í tjóni. Við greiðum þann kostnað við tjónið sem er umfram upphæð eigin áhættu þinnar. Því hærri eigin áhættu sem þú velur þeim mun lægra verð greiðir þú fyrir trygginguna. Algengast er að viðskiptavinir okkar velji eigin áhættu á bilinu 106.900 - 156.800 kr.
Eigin áhætta þín er sú sama í öllum kaskótjónum.
Kaskótrygging gildir á Íslandi og á ferðalagi innan Evrópska efnahagssvæðisins, Bretlandi og Sviss í allt að 92 daga frá brottfarardegi. Standi ferðalag lengur en í 92 daga er hægt að framlengja gildistímann gegn greiðslu.
Kaskótryggingin tekur sérstaklega vel á tjónum á rafbílum. Hvort sem rafhlaða, hleðslusnúra eða bíllinn sjálfur skemmist er hann vel tryggður hjá okkur. Hjá okkur hækkar eigin áhætta ekki þótt tjón verði á rafhlöðu.
Aukaútbúnaður á bíl svo sem filmur, innréttingar, tengdamömmubox, topptjöld, hjólafestingar, ljóskastarar, spil og fleira er ekki tryggt í kaskótryggingu. Þú getur hins vegar keypt viðbótartryggingu sem tryggir þennan aukaútbúnað. Þú velur tryggingarfjárhæðina en eigin áhætta er sú sama og í kaskó. Aukaútbúnaðurinn er eingöngu bættur ef bíllinn lendir í kaskótjóni og búnaðurinn er á bílnum þegar tjón verður.

Tryggingin bætir
-
Tjón á ökutækinu vegna skyndilegra, utanaðkomandi atvika og eldsvoða.
-
Tjón á ökutækinu vegna þjófnaðar, tilraunar til þjófnaðar og skemmdarverka, að því gefnu að atvikið sé tafarlaust tilkynnt lögreglu.
Valkvætt:
-
Trygging vegna tjóns á aukaútbúnaði þá er aukaútbúnaður ökutækis tryggður samkvæmt skilmála.
Tryggingin bætir ekki
-
Tjón við akstur utan vega, yfir óbrúaðar ár eða á vegum þar sem akstur er bannaður.
-
Tjón vegna bilana, notkunar, slits, tæringar eða ryðs, né heldur tjón sem rekja má til rangrar notkunar eða skorts á eldsneyti, smur- og kæliefnum eða hleðslubúnaði.
-
Tjón vegna aksturskeppna, gæludýra, flutnings farms, vatnstjóns við tilteknar aðstæður eða foks á lausum jarðefnum.
-
Tjón á aukabúnaði, tengivögnum, lyklum og lausum aðgangsstýringum.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Forvarnir