Hoppa yfir valmynd

Myndataka vegna kaskótryggingar

Ef þú hefur óskað eftir kaskótryggingu þurfum við að fá staðfestingu á ástandi bílsins áður en tryggingin er gefin út. Þú staðfestir ástand bílsins með því að senda okkur nokkrar ljósmyndir af honum á vis@vis.is.

Leiðbeiningar

  • Bíllinn þarf að vera sæmilega hreinn til að ástand hans sjáist greinilega á mynd.
  • Ef ljósmyndir eru teknar utandyra þarf veður að vera þannig að ástand bílsins sjáist vel.
  • Lýsing þarf að vera góð og upplausn mynda þannig að ástand bílsins sjáist vel.
  • Myndirnar þurfa að vera teknar á sama tíma og sama stað.

Við óskum eftir að sjá mynd af:

  • Bílnum að framan.
  • Bílnum að aftan.
  • Báðum hliðum bílsins.
  • Bílnum að innan.
  • Kílómetrastöðu bílsins.

Ef þú hefur ekki tök á að senda okkur myndir eða vilt frekar fá okkur til að sjá um þetta getur þú alltaf leitað til okkar á næstu skrifstofu eða á skoðunarstöð okkar á Smiðshöfða 3-5.

Við viljum árétta að tryggingin tekur ekki gildi fyrr en staðfesting hefur borist þess efnis frá VÍS.

VÍS áskilur sér rétt til að hafna útgáfu tryggingar eða fara fram á frekari skoðun á bílnum.

Hafðu samband ef eitthvað er óljóst

vis@vis.is