Kaskótryggingin bætir öll skyndileg, utanaðkomandi atvik nema annað sé sérstaklega tekið fram í skilmála. Kaskótryggingin gildir bara fyrir ferðavagninn en hægt er að bæta við tryggingu fyrir aukaútbúnaði, innbúi sem er að staðaldri í vagninum og foki yfir vetrartímann.
Aukaútbúnaður gildir fyrir til dæmis fortjöld, markísur, sólarsellur og hjólagrindur. Aukaútbúnaðurinn er tryggður á meðan hann er áfastur ferðavagni, tengdur við hann eða geymdur inn í ferðavagni.
Innbú sem er að staðaldri í ferðavagninum. Tryggingin er valkvæð og tryggingartaki velur hvaða tryggingarfjárhæð hann vill hafa.
Foktrygging yfir vetrartíma fyrir þau sem geyma ferðavagninn utandyra á tímabilinu 1. október til 15. apríl. Ef ferðavagn er geymdur innanhúss þá þarf ekki að kaupa þessa tryggingu.

Tryggingin bætir
Kaskótrygging
-
Tjón á ferðavagni vegna skyndilegra og utanaðkomandi atvika, sem falla undir skilmála, bruna, þjófnaðar og skemmdarverka.
-
Foktjón á tímabilinu frá 16. apríl til 30. september.
Aukaútbúnaður (valkvætt)
-
Tjón á aukaútbúnaði vegna skyndilegra og utanaðkomandi atvika, sem falla undir skilmála, bruna, þjófnaðar og skemmdarverka.
Innbú (valkvætt)
-
Tjón á innbúi vegna skyndilegra og utanaðkomandi atvika, sem falla undir skilmála, bruna, þjófnaðar og skemmdarverka.
Foktrygging yfir vetrartíma (valkvætt)
-
Foktjón utandyra á tímabilinu frá 1. október til 15. apríl.
Tryggingin bætir ekki
-
Tjón við akstur þar sem akstur ökutækja er bannaður, hefðbundið steinkast af vegi eða ef ferðavagn rekst niður eða grjót hrekkur upp undir hann.
-
Tjón vegna notkunar, sem rekja má til umgengni eða af völdum gælu- eða meindýra.
-
Tjón sem verður við akstur þar sem opinberir aðilar hafa varað við akstri vegna óveðurs, akstursskilyrða eða þar sem vindstyrkur mælist yfir 24,5 m/sek.
-
Ef ekki er til staðar foktrygging yfir vetrartíma eru foktjón á tímabilinu frá 1. október til 15. apríl undanskilin, nema ferðavagn sé geymdur inni í húsnæði.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Skilmálar og upplýsingaskjal
Tryggðu þér betri sparnað
Viðskiptavinir VÍS fá sérkjör þegar þeir setja sparnaðinn sinn í áskrift hjá systurfélagi VÍS, Íslenskum verðbréfum.
Vöruframboð Íslenskra verðbréfa byggir á því að viðskiptavinir geti fundið sjóð sem hentar sínu áhættuþoli, fjárfestingartíma og væntingum um ávöxtun.
Nánari upplýsingar um sérkjör og kaup í sjóðum má finna á heimasíðu Íslenskra verðbréfa.

Forvarnir