Hoppa yfir valmynd

Bílrúðutrygging

Flestir viðskiptavina okkar sem eru með lögboðna ökutækjatryggingu eru einnig með bílrúðutryggingu. Tryggingin bætir tjón á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækis. 

Gott er að eiga bílrúðulímmiða í hanskahólfinu ef lítil skemmd kemur í bílrúðuna.

Hægt er að fá bílrúðulímmiða í VÍS appinu og á þjónustuskrifstofum okkar um land allt.

Þú tilkynnir bílrúðutjón til verkstæðis sem er í samstarfi við okkur.

Tryggingin bætir

  • Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækis ásamt ísetningarkostnaði. 

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón á topp­lúg­um og glerþökum.
  • Rúðu sem brotnar við úrtöku eða ísetningu.
  • Ef aðeins flísast úr rúðu eða hún rispast.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum ökutækjatryggingar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar
Forvarnir
Umferð

Akstur

Um­ferðarregl­ur byggja á lög­um og reglu­gerðum, sem geta tekið breyt­ing­um. Í öku­námi eru lög­in og reglu­gerðirn­ar kennd­ar. Eft­ir það verður hver og einn að fylgj­ast með þeim breyt­ing­um sem verða. Nú­gild­andi um­ferðarlög nr, 77/2019 tóku gildi þann 1. janúar 2020. Með um­ferðarlög­un­um eru ýms­ar reglu­gerðir og má finna þær tengd­ar um­ferðarlög­un­um. Jafn­framt er hægt að nálg­ast sam­an­tekt þeirra á vef Sam­göngu­stofu. Upp­lýs­ing­ar um öll um­ferðarmerki má sjá á vef Vega­gerðar­inn­ar.
Lesa meira

Ef þú ert með ökutækjatryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fjölskyldu- og innbústryggingar

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Fasteignatryggingar

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Líf- og heilsutryggingar

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Ferðatryggingar

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

Dýratryggingar