Lögboðin ökutækja­trygging

Skyldutrygging fyrir öll ökutæki.Öll getum við lent í því að valda óvart tjóni í umferðinni.

Trygg­ingin bætir tjón sem ökutækið þitt veldur öðrum sem og slys sem þú eða sá sem keyrir ökutækið verður fyrir.

Hjá okkur greiðir þú enga eigin áhættu ef þú veldur tjóni í umferð­inni.

Lögboðin ökutækja­trygging saman­stendur af ábyrgð­ar­trygg­ingu og slysa­trygg­ingu ökumanns og eiganda.

  • Ábyrgð­ar­trygg­ingin bætir tjón sem þú veldur öðrum með notkun ökutæk­is­ins, hvort sem það er á fólki eða hlutum.

  • Slysa­trygging ökumanns og eiganda bætir eigið líkams­tjón slasist þú eða ökumaður ökutæk­is­ins. Slysa­trygg­ingin er valfrjáls trygging fyrir torfæru­tæki sem eru ekki í almennri umferð t.d. flesta véls­leða, krossara og fjór­hjól.

Lögboðin ökutækja­trygging sem keypt er hér á landi gild­ir í flest­um Evr­ópu­lönd­um. Trygg­ingin gild­ir hins veg­ar ekki sjálf­krafa í löndum utan Evr­ópu né í nokkr­um Evr­ópu­lönd­um utan EES. Ef þú ætlar að nota ökutæki þitt í þessum löndum og lendir í aðstæðum þar sem þú þarft að stað­festa trygg­inguna þína verður þú að fram­vísa alþjóð­legu trygg­inga­korti, svoköll­uð­u Grænu korti.

Til að einfalda þetta höfum við útbúið stað­fest­ingu sem þú getur nálgast með því að skrá þig inn á vis.is og velja ökutækja­trygg­inguna þína. Þessi stað­festing á að duga í stað græna korts­ins.

Tryggingin bætir

  • Tjón sem notkun ökutækis veldur öðrum hvort sem það er muna­tjón eða líkams­tjón.

  • Eigið líkams­tjón slasist þú eða ökumaður ökutækis þíns.

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón sem verður á ökutækinu sjálfu.

  • Tjón sem notkun ökutækis veldur á munum og húsnæði eiganda eða ökumanns ökutækis.

  • Líkams­tjón sem þú eða ökumaður verðið fyrir ef rekja má slys til meiri­háttar gáleysis eða ásetn­ings ökumanns.

  • Tjón sem verður í viður­kenndri akst­ur­skeppni.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Forvarnir

Umferð

Rafhlaupahjól og öryggi

Samkvæmt umferðarlögum er ekkert aldurstakmark á rafhlaupahjólum. Þó er mjög mikilvægt að fara eftir viðmiðum og leiðbeiningum frá framleiðanda. Þar getur aldurstakmark verið mismunandi eftir hámarkshraða hjóls, t.d. átta ár ef hámarkshraði er 12 km/klst. 14, 16 eða 18 ára ef hámarkshraði 25 km/klst. eða aldurstakmark út frá hæð notanda. Í myndbandi Samgöngustofu er farið yfir ýmis öryggismál sem snúa að rafhlaupahjóla.

Lesa meira

Umferð

Vélsleðar

Akstur vélsleða er ekki hættu­laus frekar en akstur annarra far­ar­tækja. Þess vegna er mik­il­vægt að huga að ör­ygg­inu, sama hversu stutt á að fara. Slys­in sýna að þau verða ekki bara hjá þeim sem hafa litla reynslu og verða alls ekki ein­göngu þegar veður er vont. Mikilvægt er að draga ekki úr varkárni þó þú hafir góða reynslu af sleðaferðum eða aukir hraðann í takt við gott veður.

Lesa meira

Umferð

Öryggispúðar

Öryggispúðar hafa bjargað mörgum en hönnun þeirra gengur út frá því að sá sem situr við púðann sé í bílbelti.

Lesa meira

Umferð

Æfingaakstur

Við hvetjum þig til að nýta æfingaaksturstímann vel með barninu þínu. Sá tími er frábær viðbót við öku­námið og skilar án efa betri ökumönnum út í umferðina. Með vel nýttum æfingaaksturstíma hefur barn þitt meiri reynslu og færni þegar það fer að aka eitt og óstutt. Áður en æf­inga­akst­ur hefst þarf barnið þitt að taka Öku­skóla 1 og ákveðinn fjölda tíma hjá öku­kenn­ara. Fyrsta skrefið er því að finna góðan öku­kenn­ara. Ekki þarf að tilkynna til VÍS um að æfingaakstur sé að fara fram.

Lesa meira

Umferð

Athygli

Líklega geta allir tekið undir það að hafa verið í umferðinni með athyglina á öðrum stað og eitthvað óvænt gerst sem mátti sjá fyrir. Það er nefnilega svo einfalt að umferðin krefst þess að við séum úthvíld og með fókusinn á réttum stað.

Lesa meira

Umferð

Á hjóli

Alltaf er gott og heilbrigt að skilja bílinn eftir og fara um gangandi eða nýta sér t.d. reiðhjól, hlaupahjól, bretti eða hvað annað sem í boði er.

Lesa meira

Umferð

Húsbílar

All­ir vilja kom­ast heil­ir heim úr húsbílaferðum sín­um. Til að svo megi verða þurfa húsbílaeigendur að huga að for­vörn­un­um áður en þeir leggja af stað og getur eftirfarandi gátlista hjálpað til við að ekkert gleymist.

Lesa meira

Umferð

Bílrúðulímmiði

Ef það vill svo óheppilega til að þú færð lítið brot í bílrúðuna, t.d. eftir steinkast, er mikilvægt að setja límmiða á skemmdina sem fyrst. Passa verður að hreinsa og þurrka rúðuna áður en límmiðinn er settur á.

Lesa meira

Umferð

Akstur

Um­ferðarregl­ur byggja á lög­um og reglu­gerðum, sem geta tekið breyt­ing­um. Í öku­námi eru lög­in og reglu­gerðirn­ar kennd­ar. Eft­ir það verður hver og einn að fylgj­ast með þeim breyt­ing­um sem verða. Nú­gild­andi um­ferðarlög nr, 77/2019 tóku gildi þann 1. janúar 2020. Með um­ferðarlög­un­um eru ýms­ar reglu­gerðir og má finna þær tengd­ar um­ferðarlög­un­um. Jafn­framt er hægt að nálg­ast sam­an­tekt þeirra á vef Sam­göngu­stofu. Upp­lýs­ing­ar um öll um­ferðarmerki má sjá á vef Vega­gerðar­inn­ar.

Lesa meira

Umferð

Vespur eða létt bifhjól í flokki I

Vespur eða létt bifhjól í flokki I eru þægilegur ferðamáti sem margir nýta sér, sér í lagi þeir yngri. Ákveðnar reglur gilda um ferðamátann sem mikilvægt er að þekkja.

Lesa meira

Umferð

Gangandi

Fara ferða sinna gangandi er frábær leið til að komast á milli staða. Ódýr og umfram allt heilsusamlegur ferðamáti. Muna þarf að klæða sig eftir veðri og gæta þess að vera í réttu skónum miðað við veður. Grófir sólar og mannbroddar geta t.d. forðað mörgu fallinu þegar hálka og snjór er.

Lesa meira

Umferð

Bílstólar

Einungis 1% barna komu í leikskólann án þess að vera í einhverjum öryggisbúnaði samkvæmt könn­un Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu árið 2023. Sama könnun sýndi einnig að 10% sex ára barna voru annað hvort í engum eða ófullnægjandi búnaði. Öll börn sem ekki hafa náð 135 sm hæð eiga að vera í sér­stök­um ör­ygg­is­búnaði, um­fram bíl­belti, sem tek­ur mið af hæð og þyngd þess. Sekt fyrir að vera ekki með barn í sérstökum öryggisbúnaði er kr. 30.000 og sama upphæð er ef farþegi undir 15 ára aldri er ekki í öryggis- og verndarbúnaði. Í fræðslumyndbandi Samgöngustofu er farið yfir nokkra þætti barnabílstóla sem gott er að hafa í huga.

Lesa meira

Umferð

Eftirvagnar

Á sumrin eru margir eftirvagnar í eftirdragi. Að ýmsu er að huga þar til að ferðalagið gangi vel og allir komi heilir heim.

Lesa meira

Umferð

Bílbelti

Bílbelti hafa margsannað gildi sitt sem öryggisbúnaður. Samt sem áður eru enn einhverjir sem ekki nota þau sem er sorgleg staðreynd. Að taka sér þessar 2 sek sem það tekur að spenna beltið getur öllu breytt.

Lesa meira

Umferð

Öruggur bíll

Því miður verða mörg slys og tjón í umferðinni á hverjum degi. Mörg þessara slysa verða vegna atriða sem er tiltölulega auðvelt að laga.

Lesa meira

Umferð

Bifhjól

Oft er talað um bifhjólafólk sem óvarða vegfarendur þar sem þeir hafa ekki það öryggi sem farþegarými bíls veitir. Í bifhjólaslysum eru því þó nokkrar líkur á alvarlegum meiðslum sér í lagi ef hraði er mikill. Slysarannsóknir sýna að einn af orsakaþáttum slysa er að aðrir vegfarendur átta sig ekki á hraða og fjarlægð mótorhjóls. Það er því mikilvægt að allir temji sér að líta tvisvar og gefa stefnuljós tímalega.

Lesa meira

Umferð

Eldri borgarar

Með hækkandi aldri verða marg­ar lík­am­leg­ar breyt­ing­ar hjá einstaklingum. Heyrn, sjón, viðbragð og stöðug­leiki breyt­ist sem get­ur haft áhrif á akst­urs­hæfi. Þetta má meðal ann­ars sjá á tjóna­or­sök­um en þær breyt­ast með aldr­in­um. Tjón þar sem bakkað er á verða tíðari ásamt tjón­um þar sem vinstri beygj­ur eru tekn­ar. Eldri borg­ar­ar þurfa að vera meðvitaðir um þá þætti í um­ferðinni sem þeim finnst erfiðara að tak­ast á við en áður og taka til­lit til þeirra.

Lesa meira

Aðrar trygg­ingar

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.