Rafhlaupa­hjól

Það er bæði umhverf­i­s­vænt og hagkvæmt að ferðast á rafhlaupa­hjóli en það skiptir máli að vera með réttan örygg­is­búnað og að þú kynnir þér hvaða trygg­inga­vernd þú ert með.

Almennt fellur slys á fólki undir frítíma­slysa­trygg­ingu og tjón á hjólinu undir innbús­trygg­ingu og innbúska­skó­trygg­ingu.

Í spurn­inga­safninu okkar finnur þú svör við mörgum algengum spurn­ingum. Hafðu samband eða kíktu í heim­sókn ef þú hefur einhverjar spurn­ingar — við aðstoðum þig með ánægju.

Tryggingar

  • Heim­il­is­trygging inni­heldur frítíma­slysa­trygg­ingu en hún bætir líkams­tjón vegna slysa sem verða í frístundum og við ástundun almenn­ingsí­þrótta.

  • Heim­il­is­trygging inni­heldur innbús­trygg­ingu. Innbús­trygging tryggir rafhlaupa­hjól fyrir bruna, þjófnaði og vatns­tjóni.

  • Ef heim­il­is­trygg­ingin þín inni­heldur innbúska­skó­trygg­ingu, sem er valkvæð trygg­ing, eru rafhlaupa­hjól líka tryggð fyrir tjóni af völdum skyndi­legra og ófyr­ir­sjá­an­legra utan­að­kom­andi atvika.

  • Heim­il­is­trygging inni­heldur ábyrgð­ar­trygg­ingu. Ábyrgð­ar­trygging bætir líkams- og muna­tjón sem þú veldur þriðja aðila vegna skaða­bóta­ábyrgðar sem getur fallið á þig samkvæmt íslenskum skaða­bóta­lögum við notkun á rafhlaupa­hjóli.

Gott að vita

  • Í trygg­ingum eru rafhlaupa­hjól skil­greind sem hluti af innbúi.

  • Trygg­ingar sem taka á þjófnaði gilda einungis ef almenn aðgát er höfð við vörslu hlut­anna.

  • Í heim­il­is­trygg­ingu er hægt að velja um tvær mismun­andi trygg­ing­ar­fjár­hæðir og þrjár mismun­andi eigin áhættur. Trygg­ing­ar­fjár­hæðin sem valin er ræður því hverjar hámarks­bætur eru í tjónum. Eftir því sem eigin áhættan er hærri þeim mun ódýrari er trygg­ingin en meiri kostn­aður trygg­ing­ar­taka við tjón.

  • Heim­il­is­trygging gildir fyrir þig, maka eða sambúð­armaka og ógift börn ykkar og fóst­ur­börn með sama lögheimili á Íslandi. Trygg­ingin gildir einnig fyrir börn ykkar yngri en 18 ára sem eiga annað lögheimili á Íslandi.

  • Við bendum viðskipta­vinum okkar á að passa upp á greiðslu­kvitt­anir svo hægt sé að fram­vísa þeim ef tilkynna þarf tjón.

Þú getur séð yfirlit yfir trygg­ing­arnar þínar í VÍS appinu eða með því að skrá þig inn á vefinn okkar.

Forvarnir

Umferð

Rafhlaupahjól og öryggi

Samkvæmt umferðarlögum er ekkert aldurstakmark á rafhlaupahjólum. Þó er mjög mikilvægt að fara eftir viðmiðum og leiðbeiningum frá framleiðanda. Þar getur aldurstakmark verið mismunandi eftir hámarkshraða hjóls, t.d. átta ár ef hámarkshraði er 12 km/klst. 14, 16 eða 18 ára ef hámarkshraði 25 km/klst. eða aldurstakmark út frá hæð notanda. Í myndbandi Samgöngustofu er farið yfir ýmis öryggismál sem snúa að rafhlaupahjóla.

Lesa meira

Umferð

Vélsleðar

Akstur vélsleða er ekki hættu­laus frekar en akstur annarra far­ar­tækja. Þess vegna er mik­il­vægt að huga að ör­ygg­inu, sama hversu stutt á að fara. Slys­in sýna að þau verða ekki bara hjá þeim sem hafa litla reynslu og verða alls ekki ein­göngu þegar veður er vont. Mikilvægt er að draga ekki úr varkárni þó þú hafir góða reynslu af sleðaferðum eða aukir hraðann í takt við gott veður.

Lesa meira

Umferð

Öryggispúðar

Öryggispúðar hafa bjargað mörgum en hönnun þeirra gengur út frá því að sá sem situr við púðann sé í bílbelti.

Lesa meira

Umferð

Æfingaakstur

Við hvetjum þig til að nýta æfingaaksturstímann vel með barninu þínu. Sá tími er frábær viðbót við öku­námið og skilar án efa betri ökumönnum út í umferðina. Með vel nýttum æfingaaksturstíma hefur barn þitt meiri reynslu og færni þegar það fer að aka eitt og óstutt. Áður en æf­inga­akst­ur hefst þarf barnið þitt að taka Öku­skóla 1 og ákveðinn fjölda tíma hjá öku­kenn­ara. Fyrsta skrefið er því að finna góðan öku­kenn­ara. Ekki þarf að tilkynna til VÍS um að æfingaakstur sé að fara fram.

Lesa meira

Umferð

Athygli

Líklega geta allir tekið undir það að hafa verið í umferðinni með athyglina á öðrum stað og eitthvað óvænt gerst sem mátti sjá fyrir. Það er nefnilega svo einfalt að umferðin krefst þess að við séum úthvíld og með fókusinn á réttum stað.

Lesa meira

Umferð

Á hjóli

Alltaf er gott og heilbrigt að skilja bílinn eftir og fara um gangandi eða nýta sér t.d. reiðhjól, hlaupahjól, bretti eða hvað annað sem í boði er.

Lesa meira

Umferð

Húsbílar

All­ir vilja kom­ast heil­ir heim úr húsbílaferðum sín­um. Til að svo megi verða þurfa húsbílaeigendur að huga að for­vörn­un­um áður en þeir leggja af stað og getur eftirfarandi gátlista hjálpað til við að ekkert gleymist.

Lesa meira

Umferð

Bílrúðulímmiði

Ef það vill svo óheppilega til að þú færð lítið brot í bílrúðuna, t.d. eftir steinkast, er mikilvægt að setja límmiða á skemmdina sem fyrst. Passa verður að hreinsa og þurrka rúðuna áður en límmiðinn er settur á.

Lesa meira

Umferð

Akstur

Um­ferðarregl­ur byggja á lög­um og reglu­gerðum, sem geta tekið breyt­ing­um. Í öku­námi eru lög­in og reglu­gerðirn­ar kennd­ar. Eft­ir það verður hver og einn að fylgj­ast með þeim breyt­ing­um sem verða. Nú­gild­andi um­ferðarlög nr, 77/2019 tóku gildi þann 1. janúar 2020. Með um­ferðarlög­un­um eru ýms­ar reglu­gerðir og má finna þær tengd­ar um­ferðarlög­un­um. Jafn­framt er hægt að nálg­ast sam­an­tekt þeirra á vef Sam­göngu­stofu. Upp­lýs­ing­ar um öll um­ferðarmerki má sjá á vef Vega­gerðar­inn­ar.

Lesa meira

Umferð

Vespur eða létt bifhjól í flokki I

Vespur eða létt bifhjól í flokki I eru þægilegur ferðamáti sem margir nýta sér, sér í lagi þeir yngri. Ákveðnar reglur gilda um ferðamátann sem mikilvægt er að þekkja.

Lesa meira

Umferð

Gangandi

Fara ferða sinna gangandi er frábær leið til að komast á milli staða. Ódýr og umfram allt heilsusamlegur ferðamáti. Muna þarf að klæða sig eftir veðri og gæta þess að vera í réttu skónum miðað við veður. Grófir sólar og mannbroddar geta t.d. forðað mörgu fallinu þegar hálka og snjór er.

Lesa meira

Umferð

Bílstólar

Einungis 1% barna komu í leikskólann án þess að vera í einhverjum öryggisbúnaði samkvæmt könn­un Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu árið 2023. Sama könnun sýndi einnig að 10% sex ára barna voru annað hvort í engum eða ófullnægjandi búnaði. Öll börn sem ekki hafa náð 135 sm hæð eiga að vera í sér­stök­um ör­ygg­is­búnaði, um­fram bíl­belti, sem tek­ur mið af hæð og þyngd þess. Sekt fyrir að vera ekki með barn í sérstökum öryggisbúnaði er kr. 30.000 og sama upphæð er ef farþegi undir 15 ára aldri er ekki í öryggis- og verndarbúnaði. Í fræðslumyndbandi Samgöngustofu er farið yfir nokkra þætti barnabílstóla sem gott er að hafa í huga.

Lesa meira

Umferð

Eftirvagnar

Á sumrin eru margir eftirvagnar í eftirdragi. Að ýmsu er að huga þar til að ferðalagið gangi vel og allir komi heilir heim.

Lesa meira

Umferð

Bílbelti

Bílbelti hafa margsannað gildi sitt sem öryggisbúnaður. Samt sem áður eru enn einhverjir sem ekki nota þau sem er sorgleg staðreynd. Að taka sér þessar 2 sek sem það tekur að spenna beltið getur öllu breytt.

Lesa meira

Umferð

Öruggur bíll

Því miður verða mörg slys og tjón í umferðinni á hverjum degi. Mörg þessara slysa verða vegna atriða sem er tiltölulega auðvelt að laga.

Lesa meira

Umferð

Bifhjól

Oft er talað um bifhjólafólk sem óvarða vegfarendur þar sem þeir hafa ekki það öryggi sem farþegarými bíls veitir. Í bifhjólaslysum eru því þó nokkrar líkur á alvarlegum meiðslum sér í lagi ef hraði er mikill. Slysarannsóknir sýna að einn af orsakaþáttum slysa er að aðrir vegfarendur átta sig ekki á hraða og fjarlægð mótorhjóls. Það er því mikilvægt að allir temji sér að líta tvisvar og gefa stefnuljós tímalega.

Lesa meira

Umferð

Eldri borgarar

Með hækkandi aldri verða marg­ar lík­am­leg­ar breyt­ing­ar hjá einstaklingum. Heyrn, sjón, viðbragð og stöðug­leiki breyt­ist sem get­ur haft áhrif á akst­urs­hæfi. Þetta má meðal ann­ars sjá á tjóna­or­sök­um en þær breyt­ast með aldr­in­um. Tjón þar sem bakkað er á verða tíðari ásamt tjón­um þar sem vinstri beygj­ur eru tekn­ar. Eldri borg­ar­ar þurfa að vera meðvitaðir um þá þætti í um­ferðinni sem þeim finnst erfiðara að tak­ast á við en áður og taka til­lit til þeirra.

Lesa meira

Viltu skoða fleiri trygg­ingar?

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.