- Tryggingarfjárhæð og verð tryggingar tekur mið af brunabótamati fasteignar. Brunabótamat endurspeglar endurbyggingarkostnað fasteignar.
- Mikilvægt er að þú óskir eftir brunabótamati ef um nýbyggingu er að ræða. Einnig er mikilvægt að óska eftir endurmati á brunabótamati ef þú hefur farið í miklar framkvæmdir á húsnæðinu eins og að endurnýja lagnir, koma upp viðbyggingu og fleira.
- Ef brunabótamat stendur ekki undir endurbyggingarkostnaði getur þú keypt viðbótarbrunatryggingu.
- Þegar þú kaupir lögboðna brunatryggingu myndast sjálfkrafa vernd hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands vegna ýmissa náttúruhamfara.
- Við mælum með húseigendatryggingu til viðbótar við lögboðna brunatryggingu. Einnig mælum við með heimilistryggingu fyrir innbúið og lausafjártryggingu fyrir aðra lausamuni.
Tryggingin bætir
- Tjón af völdum eldsvoða, eldingar og sprengingar.
- Tjón af völdum skyndilegs sótfalls.
- Tjón af völdum loftfara og hluta sem frá þeim falla.
- Tjón af völdum slökkvi- og björgunaraðgerða til að forðast eða takmarka tjón.
Tryggingin bætir ekki
- Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Tjón vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman, svo sem sót frá reykháfi eða kertum.
- Óbeint tjón, svo sem rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna og þess háttar.
- Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds atburðar.
- Trygging frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er innifalin. Sú trygging bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.