Tryggingin bætir
-
Tjón á eftirvagni vegna skyndilegra, utanaðkomandi atvika sem ekki eru sérstaklega undanskilin í skilmála.
Tryggingin bætir ekki
-
Skemmdir af sliti, göllum í smíði eða gerð, rangri samsetningu, broti eða annarri bilun í eða á eftirvagninum.
-
Þjófnað á einstökum hlutum eftirvagnsins.
-
Skemmdir á málningu eða rispur á eftirvagni sem mega teljast eðlilegar vegna notkunar eftirvagnsins.
-
Tjón sem verður við akstur þar sem opinberir aðilar hafa varað við akstri vegna vindstyrks eða vindhviða.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Skilmálar og upplýsingaskjal
Forvarnir


















