Vespur
Vespur eru þægilegur ferðamáti sem margir nýta sér. Vespur flokkast sem létt bifhjól í flokki I og eru hvorki tryggingaskyldar né skráningarskyldar. Því er mikilvægt að huga vel að tryggingum áður en haldið er út í umferðina. Almennt fellur slys á fólki undir slysatryggingu í frítíma og tjón á hjólinu undir innbústryggingu og innbúskaskótryggingu.
Nánari upplýsingar um reglur sem gilda um létt bifhjól í flokki I má finna hjá Samgöngustofu.
Í spurningasafninu okkar finnur þú svör við mörgum algengum spurningum. Hafðu samband eða kíktu í heimsókn ef þú hefur einhverjar spurningar — við aðstoðum þig með ánægju.

Tryggingar
-
Heimilistrygging inniheldur slysatryggingu sem bætir líkamstjón vegna slysa í frístundum og við ástundun almenningsíþrótta. Slysatryggingin bætir aðeins slys þeirra sem tryggingin tekur til, en ekki slys farþega eða annarra sem fá vespuna lánaða.
-
Heimilistrygging inniheldur innbústryggingu. Innbústryggingin tryggir vespuna þína gegn bruna, þjófnaði og vatnstjóni.
-
Ef heimilistryggingin þín inniheldur innbúskaskótryggingu, sem er valkvæð trygging, er vespan einnig tryggð gegn tjóni af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi atvika.
-
Heimilistrygging inniheldur ábyrgðartryggingu. Ábyrgðartryggingin bætir líkams- og munatjón sem þú veldur öðrum, enda berir þú skaðabótaábyrgð samkvæmt íslenskum skaðabótalögum vegna notkunar vespunnar.
Gott að vita
-
Ökumaður vespu þarf að hafa náð 13 ára aldri og skylt að nota hjálm.
-
Ekki má rjúfa innsigli til að auka hámarkshraða vespunnar umfram 25 km/klst. Sé það gert telst vespan ekki lengur létt bifhjól í flokki I og fellur tryggingavernd hennar þá ekki lengur undir heimilistryggingu.
-
Tryggingar sem taka á þjófnaði gilda einungis ef almenn aðgát er höfð við vörslu vespunnar.
-
Í heimilistryggingu er hægt að velja um tvær mismunandi tryggingarfjárhæðir og þrjár mismunandi eigin áhættur. Tryggingarfjárhæðin sem valin er ræður því hverjar hámarksbætur eru í tjónum. Eftir því sem eigin áhætta er hærri þeim mun ódýrari er tryggingin en meiri kostnaður tryggingartaka við tjón.
-
Heimilistrygging gildir fyrir þig, maka eða sambúðarmaka og ógift börn ykkar og fósturbörn með sama lögheimili á Íslandi. Tryggingin gildir einnig fyrir börn ykkar yngri en 18 ára sem eiga annað lögheimili á Íslandi.
-
Við bendum viðskiptavinum okkar á að passa upp á greiðslukvittanir svo hægt sé að framvísa þeim ef tilkynna þarf tjón.
Þú getur séð yfirlit yfir tryggingarnar þínar í VÍS appinu eða með því að skrá þig inn á vefinn okkar.
Forvarnir


















