Viðbót­ar­bruna­trygging húseigna

Trygg­ingin kemur til viðbótar lögboð­inni bruna­trygg­ingu húseigna og er ætlað að hækka trygg­ing­ar­fjárhæð þegar talið er að eign sé verð­mætari en bruna­bótamat hennar segir til um. Trygg­ingin er eingöngu í boði fyrir þá sem eru með lögboðna bruna­trygg­ingu hjá VÍS.

Sendu okkur fyrir­spurn ef þú vilt fá verð í viðbót­ar­bruna­trygg­ingu.

Ef þú hefur staðið fyrir endur­bótum á húseign þinni eða byggt við hana hvetjum við þig til að óska eftir endur­mati á bruna­bóta­mati hjá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun Íslands. Með endur­bótum er m.a. átt við ef skipt hefur verið út innrétt­ingum, skipt um einangrun, klæðn­ingu eða gólf­efni eða ef bætt hefur verið við skjól­veggjum, palli eða heitum potti.

Hvenær mælum við með að þú kaupir viðbót­ar­bruna­trygg­ingu?

  • Ef þú hefur þegar óskað eftir endur­mati á bruna­bóta­mati en bíður niður­stöðu er gott að hafa viðbót­ar­bruna­trygg­ingu í gildi í milli­tíð­inni.

  • Ef þú telur bruna­bóta­mat, jafnvel eftir endur­mat, vera of lágt og ekki endur­spegla kostnað við endur­bygg­ingu húseign­ar­innar mælum við með viðbót­ar­bruna­trygg­ingu.

Það er mikil­vægt að hafa í huga að trygg­ing­ar­fjárhæð er ekki sönnun fyrir verð­mæti húseignar og verða saman­lagðar bætur úr lögboð­inni bruna­trygg­ingu húseigna og viðbót­ar­bruna­trygg­ingu því aldrei hærri en reiknað endur­stofn­verð húseignar að viðbættum kostnaði við hreinsun.

Endur­bygg­ing­ar­kostn­aður getur verið mismun­andi milli eigna, svæða og lands­hluta og því erfitt að ráðleggja um nákvæma trygg­ing­ar­fjár­hæð. Notaðu reikni­vélina okkar til að fá vísbend­ingu um hvort þú þurfir viðbót­ar­bruna­trygg­ingu!

Tryggingin bætir

  • Tjón af völdum elds­voða, eldingar og spreng­ingar.

  • Tjón af völdum skyndi­legs sótfalls.

  • Tjón af völdum loft­fara og hluta sem frá þeim falla.

  • Tjón af völdum slökkvi- og björg­un­ar­að­gerða til að forðast eða takmarka tjón.

Tryggingin bætir ekki

  • Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.

  • Tjón vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman, svo sem sót frá reyk­háfi eða kertum.

  • Óbeint tjón, svo sem rekstr­artap, töf á fram­leiðslu eða afhend­ingu vöru, missi húsa­leigu­tekna og þess háttar.

  • Kostnað vegna hreins­unar úrgangs- eða eitur­efna í umhverfi eða jarð­vegi vegna bóta­skylds atburðar.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Forvarnir

Heimilið

Eldri borgarar

75% slysa eldri borg­ara eru heima- og frí­tíma­slys og verða þrjú af hverj­um fjór­um þeirra inni á heim­il­um, sam­kvæmt töl­um frá Land­læknisembætt­inu. Fall er al­geng­asta ástæða slys­anna.

Lesa meira

Heimilið

Börn

Börn lenda oft í til­vilj­ana­kennd­um óhöpp­um þegar þau reyna á hæfni sína. Margt er hægt að gera til að minnka líkur á þessum slysum. Passa þarf bara að forvarnir séu í takt við aldur og umhverfi barnsins. Gagn­legt er að fara yfir heim­ilið með gátlista til að átta sig á því eft­ir hverju á að horfa og hvar hætt­urn­ar geta verið. 

Lesa meira

Heimilið

Húsfélög og forvarnir

Gott er að hafa tryggingar og forvarnir á dagskrá húsfundar a.m.k. einu sinni á ári. Upplýsa þarf íbúa um hvar húsfélagið er tryggt, hvernig eigi að tilkynna tjón, spyrja út í hvort tjón hafi orðið og ræða helstu forvarnir. Mikilvægt er að muna að tjón í einni íbúð getur haft áhrif á aðrar íbúðir.

Lesa meira

Heimilið

Heimilisdýr

Algengustu heimilisdýrin eru án efa hundar og kettir. Þau gefa eiganda sinum mikið og eru oft á tíðum stór partur af fjölskyldunni. Góð umhirða þeirra er mikilvæg til að þeim líði vel.

Lesa meira

Heimilið

Innbrot

Oft á tíðum er and­lega van­líðan og óör­yggið sem fylg­ir því að brot­ist er inn á heim­ilið mun verra en tjónið og mun­ir sem hverfa í inn­brot­inu. Reynsl­an hef­ur sýnt að inn­brot eru oft skipu­lögð. Þjóf­ar eru oft­ast að leita eft­ir hlut­um sem auðvelt er að koma í verð eins og mynda­vél­um, far­tölv­um, sím­um, spjald­tölv­um, flat­skjá­um, pen­ing­um og skart­grip­um.

Lesa meira

Heimilið

Varnir gegn vatnstjóni

Á hverj­um degi verða um 20 vatns­tjón hér á landi og er kostnaður þeirra um þrír millj­arðar. Bara til VÍS ber­ast 5,5 vatns­tjónstil­kynn­ing­ar á hverj­um degi og má sjá hvernig tjón­in skipt­ast niður hér. Þótt marg­ir séu vel tryggðir fylg­ir mikið rask slík­um tjón­um og oft á tíðum get­ur verið ógjörn­ing­ur að bæta ómet­an­lega hluti sem skemm­ast.

Lesa meira

Heimilið

Eldvarnir

Um helm­ing­ur bruna á heim­il­um teng­ist raf­magni og raf­magns­tækj­um. Þar af er helm­ing­ur út frá elda­vél­um eða 25% allra bruna á heim­il­um. Í kring­um jól og ára­mót eru brun­ar tengd­ir kert­um og kertaskreyt­ing­um al­geng­ast­ir. Í Hand­bók heim­il­is­ins um eld­varn­ir sem Eld­varna­banda­lagið gaf út eru upplýsingar sem all­ir ættu að kynna sér. Bókina er einnig hægt að nálgast á ensku og pólsku.

Lesa meira

Heimilið

Heitir pottar

Mik­il­vægt er að huga vel að börn­um og þar sem heit­ir pott­ar, sund­laug­ar, vötn, ár eða annað vatn er. Muna að ung börn geta drukknað í 2-5 sm djúpu vatni og að drukkn­un er oft­ast hljóðlát.

Lesa meira

Heimilið

Trampólín

Að hoppa á trampólíni er frá­bær lík­ams­rækt sem eyk­ur þol, jafn­vægi, sam­hæf­ingu og styrk. Því miður eru þó slys við leik á trampólín­um al­geng og mörg þeirra al­var­leg.

Lesa meira

Heimilið

Moka og salta

Á veturna getur verið erfitt að fóta sig í hálku og snjó. Þá getur góður skóbúnaður og mannbroddar skipt sköpum til að koma í veg fyrir fall.

Lesa meira

Ef þú ert með eigna­trygg­ingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftir­far­andi trygg­ingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.