Hoppa yfir valmynd

Umönnunartrygging katta

Góð trygg­ing fyr­ir alla katt­ar­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna vist­un­ar katt­ar á dýra­hót­eli ef þú get­ur ekki ann­ast hann heima vegna tíma­bund­ins sjúk­dóms eða slyss heim­il­is­fólks.

  • Kaup­tíma­bil: Frá 8 vikna aldri kattar.
  • Trygg­ing­ar­fjár­hæð: Trygg­ing­ar­fjár­hæð umönn­un­ar­trygg­ing­ar katta er föst fjárhæð sem kemur fram í tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun.
  • Gild­is­tími: Getur gilt út lífaldur kattar en bótatími er að hámarki 60 dagar á hverju tryggingartímabili.

Tryggingin bætir

  • Kostnað vegna vistunar og gæslu kattar á dýrahóteli eða sambærilegri stofnun ef þú eða heimilisfólk þitt veikist eða slasist það alvarlega að þið getið ekki séð um köttinn.

Tryggingin bætir ekki

  • Kostnað vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
  • Kostnað vegna viðvarandi sjúkdómsástands einhvers í fjölskyldunni.
  • Kostnað vegna atvika sem tengjast meðgöngu eða fæðingu.
  • Kostnað vegna veikinda sem rekja má til misnotkunar áfengis, lyfja eða áverka sem viðkomandi veldur sjálfum sér.
  • Kostnað vegna ofnæmis fjölskyldumeðlima fyrir kettinum.
  • Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
  • Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar
Forvarnir
Heimilið

Heimilisdýr

Algengustu heimilisdýrin eru án efa hundar og kettir. Þau gefa eiganda sinum mikið og eru oft á tíðum stór partur af fjölskyldunni. Góð umhirða þeirra er mikilvæg til að þeim líði vel.
Lesa meira