Hoppa yfir valmynd

Reiðhestatrygging

Reiðhestatrygging er góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur tómstundahesta. Í trygg­ing­unni er tak­mörkuð líf­trygg­ing og af­notamiss­is­trygg­ing vegna reiðar.

Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur ef hest­ur deyr af völd­um slyss eða sjúk­dóms, ef taf­ar­laus af­líf­un er ráðlögð af dýra­lækni eða ef hest­ur hverf­ur og finnst ekki aft­ur inn­an 4 mánaða þrátt fyr­ir leit. Þú færð einnig greidd­ar bæt­ur ef hest­ur er úr­sk­urðaðir ónot­hæf­ur til reiðar í kjöl­far til­tek­ins sjúk­dóms eða slyss. Full­ar bæt­ur fyr­ir af­notamissi fást ef hest­ur er felld­ur en hluta­bæt­ur ef ákveðið er að hest­ur skuli lifa.

  • Kaup­tíma­bil: Þú getur keypt trygginguna þar til hesturinn er 15 vetra gamall.
  • Vottorð: Ef tryggingarfjárhæð nær 1.000.000 kr. þarf vottorð frá dýralækni um almennt heilsufar hestsins að fylgja umsókn um trygginguna. Vottorðið verður að vera innan við 30 daga gamalt og skrifað á eyðublað frá VÍS.
  • Trygg­ing­ar­fjár­hæð: Tryggingarfjárhæð takmarkaðrar líftryggingar er valfrjáls upphæð. Gott er að hafa í huga að bætur geta aldrei orðið hærri en markaðsvirði hestsins á tjónsdegi. Tryggingarfjárhæð afnotamissistryggingarinnar er sama upphæð og tryggingarfjárhæð líftryggingarinnar að frádregnum 100 þúsund krónum. Tryggingarfjárhæðirnar koma fram á tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun. Tryggingarfjárhæðirnar haldast óskertar þar til hesturinn verður 19 vetra gamall en þá lækka þær um 20% árlega.
  • Gild­is­tími: Þegar hesturinn verður 23 vetra gamall fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.

Innifalið í tryggingunni

Takmörkuð líftrygging hesta
Afnotamiss­is­trygging reið­hesta­trygg­ingar vegna reiðar
  • Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
  • Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar
Forvarnir
Frítími

Hestamennska

Skráðir fé­lag­ar hjá Land­ssam­bandi hesta­manna­fé­laga eru vel yfir 12.000 í 45 fé­lög­um og ætlaður fjöldi hesta á land­inu er um 92.000. Hestaslys geta verið alvarleg og forvarnir því mjög mikilvægar.
Lesa meira