Nánari upplýsingar um F plús 2
- F plús 2 inniheldur sjö verndir: Innbústryggingu, viðbótarkostnað vegna innbústjóns, ábyrgðartryggingu, málskostnaðartryggingu, frítímaslysatryggingu, breytinga- og hjálpartækjakostnað í kjölfar slyss og áfallahjálp.
- Ef þú ert með F plús 2 tryggingu getur þú einnig bætt við innbúskaskótryggingu og ferðatryggingu F plús.
- Þegar heimilisaðstæður breytast, til dæmis ef fjölskyldan eða húsnæðið stækkar, er gott að endurskoða F plús leiðina þína.
![Nánari upplýsingar um F plús 2](https://images.prismic.io/vis-is/6d7459b3-642d-4bdc-82f9-4a08d01a4690_FJ%C3%96+02+04490.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=131%2C0%2C1424%2C1667&w=680&h=796&fit=max&q=50)
Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.